stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Illuga Gunnarssyni hjartanlega fyrir þessa ræðu. Ég gleðst yfir því að það hefur nú gerst að menn ræða þetta mál efnislega, ég fagna því sérstaklega. Ég er að vísu ekki sammála upphafi ræðu þingmannsins um að jafna megi því ferli sem við höfum verið í (Gripið fram í.) — fyrirgefðu, en þingmaðurinn vitnaði í breytingar á stjórnarskrá Frakklands 1940 sem gerð hefði verið í skyndi og á hlaupum og ég vil ekki jafna því saman við það sem hér hefur verið í gangi undanfarin þrjú ár. Ég vil ekki jafna því saman, hann getur gert það ef hann svo kýs.
Hv. þingmaður nefndi 65.–67. gr. og hann nefndi álit Feneyjanefndarinnar. Við sem höfum staðið fyrir því að flytja þetta mál hér í þinginu höfum alltaf sagt að við vildum taka álit þeirrar nefndar til umræðu á milli 2. og 3. umr. og ég tel það þá alveg upplagt að við vísum málinu aftur til nefndarinnar og förum mjög gaumgæfilega ofan í það.
Hvað varðar 65. og 67. gr. þá fjölluðum við heldur ekki um hana út af því hinu sama, við ætluðum að bíða álits Feneyjanefndarinnar. En ég er á hinn bóginn að mörgu leyti mjög sammála því sem þingmaðurinn sagði um 10% þröskuldinn. Mér finnst hann líka lágur. Ég hefði kosið að við gætum rætt þetta og mér finnst það sérstaklega ánægjulegt að vera búin að fá fram skoðun hv. þm. Illuga Gunnarssonar á þessu máli og mun vissulega hafa það í bakpokanum.