stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Það er vandinn þegar við komum fram með gjaldtöku sem byggir á sjálfbærri nýtingu, að koma eigi í veg fyrir ofnýtingu með gjaldtökunni. Það er auðvitað þekkt hugmynd úr hagfræðinni. Það sem menn hafa rekist á þar, og þess vegna hefur þetta reynst allt að því ógerlegt, er hvernig menn finna það gjald og hvernig menn reikna það síðan út. Það var það sem við rákum okkur á í fiskveiðistjórnarumræðunni síðastliðið vor, þ.e. hvernig menn afla gagnanna, hvernig menn reikna gjaldið út. Þá reyndum við ekki einu sinni að ganga svo langt að stýra sókninni á grundvelli gjaldtökunnar, eins og reyndar hugmyndir Gylfa Þ. Gíslasonar stóðu til á árum áður og voru lengi á sveimi í umræðu um auðlindanýtingu. Frá því var fallið vegna þess að í því er reikni- og upplýsingavandi sem gerir að mínu mati mönnum ekki kleift að stýra auðlindanýtingu og sókn í þær á grundvelli gjaldtöku.
Þess vegna segi ég: Ef við ætlum að setja það inn í stjórnarskrána að gjaldtakan eigi að endurspegla (Forseti hringir.) sjálfbæra nýtingu á þeim grundvelli sem hér var rætt held ég við lendum í ansi flóknum (Forseti hringir.) málum. Ég treysti hagfræðingum bara mjög illa.