141. löggjafarþing — 82. fundur,  15. feb. 2013.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[14:41]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Forseti. Ég sat hér í salnum að hlusta á þriðju ræðu þingmannsins Vigdísar Hauksdóttur í þessu máli, í 2. umr. það er að segja. Enn hef ég ekki heyrt neitt frá þingmanninum, þótt ég hlusti af athygli, sem lýtur að efni eða inntaki frumvarpsins. Því langar mig einfaldlega að spyrja hvort þingmaðurinn hyggist ræða efnislega um frumvarpið í 2. umr. og þá hvenær það fari fram, því að ég ætla ekki að missa af því.