stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Ég spyr: Hvar hefur hv. þm. Margrét Tryggvadóttir verið í allri þessari umræðu? Líklega er þetta fjórða ræðan mín, minnir mig, frekar en að þetta sé þriðja ræðan. Ég hef rétt fram sáttarhönd, ég hef lagt til það sem þarf að koma í stjórnarskrána. Ég hef sagt að við þurfum að setja auðlindaákvæði inn í stjórnarskrána og ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur. Ég fór yfir það í ræðu minni áðan.
Ég tala í þessu máli til að koma sjónarmiðum mínum á framfæri (Gripið fram í.) og reyna að bjarga því sem bjargað verður í því, jafnmikið og ég talaði í Icesave-málinu. Í hverjum einasta Icesave-samningi notaði ég þennan ræðustól. Við vitum hvernig Icesave-málið fór. Fyrir þrautseigju, fyrir kjark og þrátt fyrir að framsóknarmenn væru sakaðir um (Gripið fram í.) að vera neikvæðir og stunda málþóf, (Gripið fram í: … stjórnarskrána núna.) hvað gerðist? (Gripið fram í.) Dómurinn féll Íslendingum í hag. Þökk sé því að 26. gr. stjórnarskrárinnar er virk og að forseti geti vísað málum í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ég hafna þessum málflutningi frá hv. þm. Margréti Tryggvadóttur. Ég hef ætíð komið með tillögur til úrbóta til að bjarga því sem bjargað verður í málinu og vísa aftur í nefndarálit mitt. Þar stendur, með leyfi forseta:
„Annar minni hluti ítrekar þá skoðun sína og vilja að til að ná sátt sé ráðlegt að fulltrúar allra flokka flytji þingsályktunartillögu fyrir þinglok sem tryggi áframhaldandi vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar á komandi kjörtímabili.“
Það er einstaklega ánægjulegt að segja frá því að þetta er raunverulega það sem Feneyjanefndin komst líka að í áliti sínu. Því má segja að fulltrúi flokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sé sammála Feneyjanefndinni, eða réttara sagt Feneyjanefndin er sammála 2. minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. (Gripið fram í.)
(Forseti (ÁRJ): Forseti biður hv. þingmenn um að gefa ræðumönnum hljóð þegar þeir flytja mál sitt.)