141. löggjafarþing — 83. fundur,  19. feb. 2013.

tilkynning um skrifleg svör.

[13:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hafa tvö bréf, annars vegar frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 922, um nefndir, ráð, verkefnisstjórnir og starfshópa, og hins vegar frá innanríkisráðuneytinu, um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 924, um sama efni. Báðar fyrirspurnirnar eru frá Vigdísi Hauksdóttur. Þar sem ekki hefur tekist að afla nauðsynlegra gagna til að veita fullnægjandi svör við fyrirspurnunum fara ráðuneytin þess á leit að fá frest til loka mánaðarins til að svara fyrirspurnunum.