orkufrekur iðnaður á Bakka.
Virðulegur forseti. Hæstv. menntamálaráðherra hefur að undanförnu tjáð sig töluvert um atvinnumál og hvað sé æskilegt í þeim efnum og hvað síður. Hæstv. ráðherra leggur reyndar áherslu á mikilvægi þess að atvinnulíf á Íslandi verði fjölbreytilegra en það hefur verið fram að þessu. Ég geri ráð fyrir að flestir séu sammála um mikilvægi þess.
En hvert er viðhorf hæstv. ráðherra til fyrirhugaðrar uppbyggingar orkufreks iðnaðar á Bakka við Húsavík? Þar horfa menn fram á heilmikla atvinnuuppbyggingu sem hlýtur að vera flestum fagnaðarefni. Er hæstv. ráðherra sammála okkur um að fagna beri þeirri uppbyggingu orkufreks iðnaðar sem fyrirhuguð er á Bakka við Húsavík?