141. löggjafarþing — 83. fundur,  19. feb. 2013.

orkufrekur iðnaður á Bakka.

[13:43]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Virðulegur forseti. Það er svo sem ekkert nýtt að menn ræði mikilvægi þess að auka fjölbreytileika íslensks atvinnulífs, menn hafa lengi stefnt að því. Hins vegar hefur mönnum líka lengi verið ljóst að það þurfi sterkar stoðir, sterkar undirstöðugreinar til að standa undir nýsköpuninni sem er bæði dýr og felur í sér mikla áhættu.

Það er ánægjulegt að hæstv. ráðherra skuli taka undir að æskilegt sé að upp byggja iðnað á Íslandi. Af svari hæstv. ráðherra að dæma virðist hæstv. ráðherra og Vinstri hreyfingin – og grænt framboð ekki leggjast gegn iðnaði almennt, ekki nema framleiðslu áls. Ég veit ekki hver ástæðan er fyrir því vegna þess að framleiðsla áls er auðvitað mjög umhverfisvæn ef hún er unnin með endurnýjanlegri orku en ekki olíu eða gasi. Ég hefði því haldið að umhverfissinnaður flokkur ætti sérstaklega að fagna slíkri framleiðslu. En hæstv. ráðherra er frekar tilbúin að fallast á iðnað sem mengar meira en álið. Það er svo sem sérstakt en ánægjulegt að Vinstri hreyfingin – grænt framboð (Forseti hringir.) skuli vera að taka iðnað í sátt.