141. löggjafarþing — 83. fundur,  19. feb. 2013.

grásleppuveiði.

[13:58]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Frú forseti. Það er ánægjulegt að heyra að hæstv. ráðherra vill skoða þessi mál og vera í námunda við þau því að hér eru gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir mörg hundruð sjómenn hringinn í kringum landið eins og ég gat um. Það er rétt sem fram kom í ræðu hæstv. ráðherra að töluverðar birgðir eru í landi. Þær eru reyndar hjá körlunum sjálfum fremur en í húsunum og er töluverð breyting frá því sem var áður. Það er líka rétt að netafjöldinn hefur minnkað töluvert á síðustu missirum, farið úr held ég 150 netum í 100, þannig að það munar miklu. Það er því mjög sótt að þessari grein núna, kannski af náttúrulegum ástæðum.

Ég vil enn fremur spyrja og vekja athygli á því hvort ekki þurfi að skoða stofninn með öðrum hætti þegar ljóst er að hann er að meginhluta kominn upp í grunnslóð á þeim tíma sem hann er mældur. Ef til vill hafa þeir sem gerst þekkja, sjómennirnir sjálfir, eitthvað til síns mál þegar kemur að mælingunni. Hún hlýtur að vera grunnatriðið í þessum efnum.