141. löggjafarþing — 83. fundur, 19. feb. 2013.
forkaupsréttur og framsal í sjávarútvegi.
Frú forseti. Ég skorast ekkert undan því að ráðuneytið leggi sitt af mörkum í þessum efnum varðandi undirbúning og skoðun. Ég vek hins vegar athygli hv. þingmanns og þingheims á því að lögin eru opin inni í atvinnuveganefnd og frekar tvö en eitt frumvarp sem ganga út á breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Vilji menn taka á þessu þar og styrkja til dæmis og gera fortakslausari forkaupsréttarákvæði þá eru hæg heimatökin fyrir Alþingi að gera það í tengslum við afgreiðslu þeirra mála.