141. löggjafarþing — 84. fundur,  20. feb. 2013.

heimsókn forseta norska Stórþingsins.

[15:02]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti norska Stórþingsins, Dag Terje Andersen, er staddur á þingpöllum. Með honum í för eru meðal annars þingmennirnir Per-Kristian Foss, Lillian Hansen og Snorre Serigstad Valen. Forseti Stórþingsins er í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn til Íslands í boði forseta Alþingis.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta norska Stórþingsins, Dag Terje Andersen, og sendinefnd velkomin í Alþingishúsið og ég vænti þess að heimsókn hans til Íslands verði til að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru milli landa okkar.

Alþingi vottar forseta Stórþingsins og norsku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn rísa úr sætum.]