viðbrögð við fjölgun ferðamanna á Íslandi.
Virðulegi forseti. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með því hvernig þróunin hefur verið í ferðamálaiðnaði okkar. Það hefur fjölgað hér verulega og munar virkilega um á þessum erfiðu tímum.
Hv. þm. Sigmundur Ernir sagði hér áðan að það þyrfti að einfalda skattkerfið og efla skattskil í greininni. Það er hárrétt. Því er alveg með ólíkindum að hann skuli hafa stutt framkvæmdir þessarar ríkisstjórnar með aukinni skattheimtu sem dregur úr skattskilum í greininni, og er bara til þess fallið, og setur hlutina hér í ákveðna óvissu og hefur sett frekari fjárfestingar í greininni á bið. Nærtækasta dæmið er stórhótel við Hörpu, ráðstefnuhótel sem alþjóðleg hótelkeðja ætlaði að byggja en sló meðal annars á frest vegna þessara áforma og aðgerða yfirvalda. Þannig höfum við heyrt um fjárfestingarverkefni um allt land sem var slegið á frest vegna þeirrar óvissu sem ríkisstjórnin hefur skapað í þessari grein.
Það hefur verið ánægjulegt að sjá samspilið á milli ferðaþjónustunnar og annarra atvinnugreina, hvernig ferðaþjónustan nýtir sér íslenskan landbúnað í auknum mæli um allt land í því skyni að efla ferðaþjónustu, hvernig orkufrekur iðnaður hefur laðað að sér ferðamenn á Íslandi og skapað hér náttúruperlur eins og Bláa lónið. Við sjáum hvað hefur gerst fyrir austan með Kárahnjúkavirkjun þar sem aðgengi ferðamanna inn á hálendið hefur aukist og eflt mjög ferðaþjónustu á því svæði. Þetta getur farið vel saman við ímynd okkar, ólíkt því sem margir hafa haldið fram.
Gjaldtakan af ferðamannastöðum er eitt mál. Við verðum auðvitað að efla fjármuni til ferðamannastaða til að byggja þá upp til að standa undir þeirri gríðarlegu aukningu sem hefur orðið og verður vonandi áfram í þessari þróun. Ég tel og hef verið þeirrar skoðunar að við eigum frekar að efna til gjaldtöku á ferðamannastöðunum sjálfum. Það er í senn atvinnuskapandi á hverjum stað og hluti af því fjármagni getur orðið eftir heima í héraði sem er þá nýtt til að vinna (Forseti hringir.) úr aðstæðum. Það eykur þjónustu og styrkir stoðir ferðaþjónustunnar um allt land. (Forseti hringir.) Á sama tíma getum við látið hluta af þessari gjaldtöku fara inn á þá ferðamannastaði þar sem gjaldtaka er erfiðari.
(Forseti (ÞBack): Forseti vill áminna hv. þingmann um að ávarpa þingmenn með fullu nafni.)