141. löggjafarþing — 84. fundur,  20. feb. 2013.

síldardauði í Kolgrafafirði.

[16:35]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þessa málefnalegu umræðu og taka undir að þetta eru hreinar hamfarir. Setjum málið í samhengi. 10. desember er talið að drepist hafi 30 þús. tonn af síld og 1. febrúar 22 þús. tonn af síld. Heildarkvótinn á árinu er 67 þús. tonn. Afleiðingar eru augljóslega miklar og þær birtast okkur fyrst núna hvað varðar lífríkið í firðinum og mögulegar afleiðingar fyrir ábúendur, fyrir búskap, fyrir fuglalíf og svo framvegis.

Nú liggur fyrir hver ástæðan er fyrir þessum mikla síldardauða. Það er talið ótvírætt að þar hafi valdið súrefnisskortur en við þurfum hins vegar að komast til botns í því hvað olli honum. Aðstæður voru mjög svipaðar í desember og í febrúar. Talið er að þegar síldardauðinn varð 10. desember hafi verið um 300 þús. tonn af síld í firðinum. Núna í febrúar var talsvert minna magn en þá hafði átt sér stað mikið niðurbrot eða rotnun og það olli því að súrefnið minnkaði hratt. Það er örugglega ástæðan fyrir síldardauðanum í febrúarmánuði.

Ein spurning sem vaknar er þessi: Hver verða áhrifin á síldarstofninn? Mun þetta mögulega leiða til minni veiði á síld á næstu árum? Við vitum það ekki nákvæmlega en það er ljóst að svona mikil afföll munu hafa einhver áhrif á stofninn. Það sem er hins vegar jákvætt er að við vitum að bæði 2007-árgangurinn og 2008-árgangurinn af síld eru að vaxa vel. Það hefur komið í ljós til dæmis við loðnuveiðar fyrir Suðausturlandi og menn gera ráð fyrir því að það muni líka eiga sér stað þegar loðnan færist vestar. Það gefur okkur vonandi fyrirheit um að þetta muni ekki hafa þau áhrif að við verðum að skera niður síldarkvótann, en engu að síður er þetta staðreyndin.

Ég hvet til þess eins og aðrir að við höldum áfram vöktun og rannsóknum á raunverulegum ástæðum súrefnisskortsins. (Forseti hringir.) Sömuleiðis vil ég vekja athygli á því og undirstrika það sem hv. þm. Ásbjörn Óttarsson sagði áðan um háhyrningana sem eru þarna fyrir utan (Forseti hringir.) og halda síldarstofninum of innarlega í firðinum.