samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.
Frú forseti. Það er svo sannarlega ánægjulegur áfangi þegar barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna verður lögfestur á Alþingi. Honum fylgir skuldbindandi samkomulag þjóða heims um sérstök réttindi til handa börnum óháð réttindum fullorðinna. Þótt aðildarríkin að samningnum séu skuldbundin til að tryggja börnum þau réttindi sem samningurinn veitir þeim er sú skuldbinding aðeins samkvæmt þjóðarétti. Vegna tvíeðliskenningarinnar sem lögð er til grundvallar í lagatúlkun hér á landi þarf að lögfesta alþjóðlega samninga ef þeir eiga að hafa bein réttaráhrif hér á landi.
Því mun vægi sáttmálans verða mun meira nú eftir lögfestingu en áður. Ástæða er til að óska hv. flutningsmönnum og nefndarmönnum sem unnu í allsherjar- og menntamálanefnd að þessu góða máli þvert á flokka til hamingju með það og þakka þeim fyrir framúrskarandi góða vinnu sem tryggir það að við náum að lögfesta sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna nú fyrir þinglok.