forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu.
Herra forseti. Ég verð að segja að ég undrast nokkuð þessar athugasemdir þó að ég sé nú orðin nokkuð sjóuð í kvöldfundum eftir síðustu fjóra vetur undir forustu vinstri stjórnarinnar á Alþingi. Ég er að sjálfsögðu reiðubúin til að sitja hér áfram og ræða málið, það er ekki spurning. Búið er að samþykkja kvöldfund, það gerðu m.a. hv. þingmenn hér fyrr í dag. Þá lá dagskráin afar skýrt fyrir. Engar athugasemdir voru þá gerðar í þingsal við lengd þingfundar eða varðandi dagskrána sem slíka.
Ég er því reiðubúin sem talsmaður þessa máls að taka umræðuna og reyna að hafa hana sem upplýstasta eins og venja er þegar við þingmenn erum hér fram eftir kvöldi og nóttu að ræða mikilvæg mál. Ég held að það skipti miklu að við förum þá vel yfir málið. Ég er reiðubúin sem talsmaður málsins að fara yfir það en virði um leið dagskrárvald hæstv. forseta Alþingis varðandi það hvernig menn hafa sett hér mál á dagskrá. Ég er ekki alltaf sátt við það sem sett er á dagskrá en ég virði það sem er búið að ákveða. Það þýðir ekki að koma síðan hlaupandi og segjast vilja (Forseti hringir.) breyta öllu. Ég er reiðubúin til að vera hér fram eftir kvöldi og standa fyrir kvöldfundi ef svo ber undir.