forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu.
Herra forseti. Ég vil minna á að þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og reyndar stjórnarflokkanna beggja greiddu atkvæði að venju með því að fundur mætti standa lengur en þingsköp leyfa og inn í kvöldið og ekki munum við, ég og flokksmenn mínir, kveinka okkur undan því.
Það er rétt að ekki var gerð athugasemd hér í þingsal við dagskrána, enda hafði ég sem formaður þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs haft samband við skrifstofu þingsins klukkan hálfþrjú í dag, hálftíma áður en þingfundur hófst, og gert grein fyrir ósk þingflokksins. Málið var tekið fyrir á þingflokksfundi enda er innanríkisráðherra fjarverandi og þeir talsmenn flokksins í nefndinni sem lýst hafa fyrirvörum sínum.
Herra forseti. Það á ekkert skylt við það hvort menn eru með eða á móti kvöldfundi. Og auðvitað var Sjálfstæðisflokkurinn á móti því að halda kvöldfund (Forseti hringir.) eins og vant er. Það snýst ekki um það.