141. löggjafarþing — 85. fundur,  21. feb. 2013.

afgreiðsla mála fram að þinglokum.

[10:36]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Virðulegur forseti. Það er ekki við forseta þingsins að sakast eins og mér heyrðist á máli hæstv. forsætisráðherra þegar hún gagnrýndi dagskrána undanfarna viku og taldi svo upp hin ýmsu mál sem eru ekki enn þá komin inn í þingið frá ríkisstjórninni. Er kannski ætlast til þess að virðulegur forseti taki upp á því að leggja fram mál fyrir ríkisstjórnina? Ríkisstjórnin hefur allt þetta kjörtímabil jafnvel ekki skilað hinum stærstu og brýnustu málum í tæka tíð og hvað þá fylgt þeim eftir eins og þörf væri með eðlilegri vinnu í nefndum. Vandinn liggur hjá ríkisstjórninni.

Ég velti fyrir mér hvort ekki færi vel á því núna í lok kjörtímabilsins að ríkisstjórnin breytti um aðferð — það er orðið ljóst að hún mun ekki klára málin og líklega ekki koma þeim inn í tæka tíð — og hún tæki upp á því að fara að afgreiða tillögur stjórnarandstöðunnar. Það eru margar mjög góðar tillögur, sem (Forseti hringir.) sumar hverjar hafa verið látnar bíða jafnvel í fjögur ár eða drepnar í nefndum, sem væri hægt að nýta núna á þessum síðustu dögum til að sýna árangur ríkisstjórnarinnar.