141. löggjafarþing — 85. fundur,  21. feb. 2013.

fundur með sveitarstjórnarmönnum á Norðurlandi vestra.

[11:01]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Auðvitað vitum við að ekki er hægt að verða við öllum óskum en það er að minnsta kosti hægt að gera eitt, það er hægt að svara fólki. Það sem ég rakti hér áðan er alveg með ólíkindum. Heildarsamtök sveitarfélaga í heilum landsfjórðungi óska eftir fundi með ráðherrum. Það þarf að taka það mál sérstaklega upp á Alþingi til að orðið sé við því. Það tók marga mánuði að koma þessum fundi á. Síðan eru lagðar fram tillögur, þær eru settar í einhverja meðferð í ráðuneytum og svör ráðuneytanna eru ýmist neikvæð eða svo rýr í roðinu að það tekur varla að nefna þau.

Nú segir hæstv. ráðherra að samskipti við sveitarstjórnarmenn hafi verið svo góð. Mér finnst þetta ekki lýsa því. Er hæstv. ráðherra að segja að það hafi verið tekin ákvörðun um að taka sveitarstjórnarmenn á Norðurlandi vestra alveg sérstökum tökum, það ætti að hirta þá svolítið til með þessum tilburðum hæstv. ríkisstjórnar?

Hæstv. ráðherra nefnir sóknaráætlunina. Hún er góð og gild. Það fóru 50 millj. kr. til Norðurlands vestra. Það eru 10% af því sem (Forseti hringir.) eitt fyrirtæki á Norðurlandi vestra borgar í veiðigjald á þessu ári og mun sennilega borga 1 þús. milljarða á næsta ári þannig að þetta eru litlir molar (Forseti hringir.) sem er verið að deila í gegnum þessa sóknaráætlun miðað við það sem er tekið út úr fjórðungnum með auknu veiðigjaldi og hefur auðvitað neikvæð áhrif á (Forseti hringir.) atvinnuuppbyggingu á þessu svæði.