141. löggjafarþing — 85. fundur,  21. feb. 2013.

ársreikningar.

94. mál
[11:21]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegi forseti. Varðandi þær breytingar sem gerðar eru á fjárhæðarmörkum eru þær gerðar fyrir atbeina hv. atvinnu- og nýsköpunarráðherra. Þær eru fyrst og fremst til þess gerðar að draga úr íþyngjandi ákvæðum á smærri og meðalstór fyrirtæki í samkeppni um að veita upplýsingar sem dregið gætu úr samkeppni á markaði. Ég hvet þingmenn til að styðja fram komna breytingu.