141. löggjafarþing — 85. fundur,  21. feb. 2013.

rannsókn samgönguslysa.

131. mál
[11:28]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þegar stofnanir eins og þessar eru sameinaðar er það stundum gert til að styrkja þær faglega. Það á klárlega ekki við í þessu tilviki. Stundum er líka sagt að verið sé að styrkja þær fjárhagslega, en við vitum að svo er ekki, búið er að sýna fram á það. Við vitum líka að allir þeir sem við eiga að búa hafa talað gegn sameiningunni. Það gildir jafnt um sjómenn, útgerðarmenn, samtök þeirra sem um samtök þeirra sem stunda landflutninga. Það er alveg sama hvar borið er niður; allir vara við því. Það vill þetta enginn nema ríkisstjórnin og það eru ekki mikil meðmæli með málinu. Ég mun því segja nei.