141. löggjafarþing — 85. fundur,  21. feb. 2013.

útgáfa og meðferð rafeyris.

216. mál
[11:33]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Þessi breytingartillaga er einvörðungu tæknilegs eðlis og lýtur að tilvísunum innan frumvarpsins en markmið laganna er að koma lögum utan um þær tæknilegu breytingar sem eru að verða í greiðslumiðlunarkerfum og tryggja hagsmuni neytenda, m.a. um inneignir þeirra hjá alls kyns vildarkortum og inneignum.