141. löggjafarþing — 85. fundur,  21. feb. 2013.

álit framkvæmdastjórnar ESB um að verðtryggð lán séu ólögleg.

[13:52]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Eins mikilvægt og ég tel að við ræðum málið í þinginu vil ég samt aðeins fá að rifja upp samlíkingu sem hv. þm. Þráinn Bertelsson kom með í umræðunni um Icesave-samningana á sínum tíma. Þar líkti hann því við að íslenska þjóðin væri komin í fangaklefa, varðmennirnir stæðu fyrir utan og við værum farin að velta fyrir okkur hvort við ættum að fá okkur bleikar eða bláar gardínur í staðinn fyrir hvernig við ættum að koma okkur út úr þessu.

Aðalatriðið hlýtur náttúrlega að vera að við viljum afnema verðtryggingu á neytendum og þá sérstaklega neytendalánum. Það er lykilatriði. Það má eiginlega segja að meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar hafi þegar viðurkennt að það hafi ekki verið rétt framkvæmt með þeim breytingum á frumvarpi um neytendalán sem kom frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og nefndin hefur afgreitt frá sér. Þess vegna verð ég að spyrja eins og ég gerði í morgun: Af hverju er verið að krefjast frávísunar fyrir dómstólum? Af hverju er fulltrúi hins opinbera, ríkislögmaður, að krefjast frávísunar í máli Hagsmunasamtaka heimilanna gagnvart Íbúðalánasjóði? Hefur hæstv. fjármálaráðherra komið á framfæri opinberlega þeirri skoðun sem kom fram í máli hennar um að tryggja eigi flýtimeðferð í máli Landsbanka Íslands, sem er þá hin ríkisstofnunin eða fyrirtæki sem er í eigu ríkisins, sem er verið að höfða mál gegn?

Ég held líka að mikilvægt sé að ráðherrann svari því, þar sem tillaga meiri hluta nefndarinnar gengur út á að meðhöndla verðbætur eins og vexti, hvort það sé skilningur stjórnvalda að verðbætur séu vextir. Í lögum um vexti og verðtryggingu kemur mjög skýrt fram að ekki má bæta vöxtum við höfuðstól oftar en á 12 mánaða fresti nema um sé að ræða innlánsreikninga lánastofnana. Ég vil líka benda hæstv. ráðherra á að í (Forseti hringir.) skattkerfinu með fjármagnstekjum eru verðbætur skattlagðar eins og fjármagnstekjur, eins og vextir.