álit framkvæmdastjórnar ESB um að verðtryggð lán séu ólögleg.
Forseti. Í seinni ræðu minni langar mig til að vekja athygli á þeirri ótrúlegu staðreynd að stjórnvöld hafa velt þeirri ábyrgð yfir á einstaklinga og heimili, skuldsett heimili, að krefjast réttlætis í lánamálum. Í raun og veru má rökstyðja að enginn sé í verri stöðu til að leita réttar síns en einstaklingur sem skuldar allt of mikið. Ég held að ég muni eiginlega aldrei fyrirgefa þetta, ég verð bara að segja það. Við erum heppin og eigum hugrakkt fólk sem hefur lagt í slíka vegferð og unnið sigur, en kerfið hefur verið iðið við að leggja stein í götu þessa fólks. Málum hefur verið vísað frá, fyrirspurnum og erindum ekki svarað, fjármálafyrirtækin hafa komist upp með ótrúlega hluti og lögum á Alþingi hefur jafnvel verið breytt í miðju ferli þannig að málatilbúnaður eyðileggst á milli héraðsdóms og Hæstaréttar. Fólki er engin miskunn sýnd.
Mig langar líka að taka undir með Árna Þór Sigurðssyni sem talaði um óverðtryggðu lánin. Ég hef miklar áhyggjur af því hve margir hafa fært sig yfir í óverðtryggð lán á meðan regluverkið er ekki betra en það er. Ég held að það sé því miður tifandi tímasprengja og eftir tvö, þrjú ár þegar bankarnir geta einhliða breytt vöxtum sem þarf að staðgreiða verður okkur verulegur vandi á höndum ef við breytum því ekki.