141. löggjafarþing — 85. fundur, 21. feb. 2013.
Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
194. mál
Hæstv. forseti. Ég spurði einmitt hv. þingmann vegna þessa, af því að fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni er á nefndarálitinu með fyrirvara, sem lýtur ekki að þessu. Þótt nefndin láti þetta koma fram í nefndaráliti er engu að síður engin breytingartillaga um það en nú hefur spurningu minni verið svarað. Varaformaður Framsóknarflokksins hefur í stuttu máli farið yfir stefnu Framsóknarflokksins varðandi málið og þá er ég ánægð.