141. löggjafarþing — 86. fundur,  25. feb. 2013.

skuldavandi vegna verðtryggðra lána.

[15:09]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Á fundi sem ég var á í Reykjanesbæ á fimmtudaginn, sem framsóknarmenn héldu, meðal annars um verðtrygginguna og skuldamál heimila, kom fram sá gríðarlegi vandi sem er fyrir hendi á Suðurnesjunum vegna langtímaatvinnuleysis og fjölda uppboðsbeiðna og þar er fólk að missa húsnæði sitt í stórum stíl. Nú var ekki mikið um gleðiefni á landsfundum Vinstri grænna eða Sjálfstæðisflokksins um helgina til handa þeim sem eru að missa eignir sínar og því ætla ég ekki að spyrja hæstv. ráðherra út í það.

Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé með í smíðum eða í undirbúningi í ráðuneytinu að skoða hvort hægt sé að koma til móts við þá aðila sem eru að tapa húseignum sínum, meðal annars vegna þess að svo gæti farið að verðtryggingin verði dæmd ólögmæt. Þá gæti komið upp svipuð staða og var þegar menn voru að tapa húseignum sínum vegna gengistryggðra lána sem síðan voru dæmd ólögmæt og vandræðagangur sem af því hlaust. Þá var um það rætt hér hvort hægt væri að fresta gjaldþrotabeiðnum og aðfararbeiðnum sýslumanna þar til niðurstaða fengist í það mál. Hér gætum við meðal annars verið að tala um flýtimeðferðir en hér er líka frumvarp, flutt af fjórum hv. þingmönnum, sem hefur reyndar ekki fengið náð hér í þingsalnum, þar sem meðal annars er verið að tala um að breyta lögum um nauðungarsölu, gjaldþrotaskipti og meðferð einkamála þar sem hægt er að leita til dómstóla til að fá frestun á uppboðum.

Ég spyr hæstv. ráðherra hvort hann sé í sínu ráðuneyti að vinna að einhverjum ráðum sem mundu hjálpa fólki sem er að missa húseignir sínar þessa dagana.