141. löggjafarþing — 86. fundur,  25. feb. 2013.

staða aðalvarðstjóra á Höfn.

534. mál
[15:35]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Í ljósi niðurskurðar á fjárveitingum til embættis sýslumannsins á Eskifirði og hagræðingar í rekstri stofnunarinnar hefur sýslumaðurinn á Eskifirði gert tillögu að nýju skipuriti lögreglunnar á Eskifirði á þann veg að í stöðu aðalvarðstjóra á Höfn verði ráðinn varðstjóri. Ástæða þessa er betri nýting fjármuna, auk þess sem ekki er talin þörf á stöðugildi aðalvarðstjóra á Höfn.

Skipuritið bíður afgreiðslu í ráðuneytinu og verður staðan ekki auglýst fyrr en skipuritið hefur verið samþykkt.