141. löggjafarþing — 87. fundur,  25. feb. 2013.

umræða um 2. dagskrármál.

[16:16]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S):

Herra forseti. Í ljósi umræðna sem áttu sér stað á fyrri fundi, og einnig vísa ég til orða hæstv. forseta frá því á miðvikudaginn í síðustu viku, vil ég gjarnan fá á hreint í upphafi þessa þingfundar hvort það sé þá ekki örugglega þannig, fyrst allir hafa verið hér í húsi, bæði þeir nefndarmenn allsherjar- og menntamálanefndar sem eru á meirihlutaálitinu sem tengist forvirku rannsóknarheimildunum — og hér gengur hæstv. innanríkisráðherra í salinn, sem væri óskaplega gott að væri við umræðuna þegar kemur að 2. dagskrármálinu — að það mál verði hér á dagskrá í ljósi þeirrar orðræðu sem hefur átt sér stað í þingsal vegna dagskrár fundarins. Ég tel mikilvægt að menn ræði málið og tek undir það sem hv. þingmenn hafa sagt, að mikilvægt sé að ræða málið. Þess vegna vonast ég til að málið verði tekið til umræðu til að við getum rætt það og síðan tekið það til afgreiðslu.