141. löggjafarþing — 87. fundur,  25. feb. 2013.

umræða um 2. dagskrármál.

[16:18]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég er með sömu spurningu varðandi dagskrána og þeir tveir hv. þingmenn sem hafa talað á undan mér. Ég tel að mjög brýnt sé varðandi framgang þessa fundar að við fáum upplýsingar um hvort til standi að halda sig við þá dagskrá sem liggur fyrir, að 2. dagskrármálið, þ.e. forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu, komist til umræðu.

Nú hefur þingflokksformaður Vinstri grænna upplýst það að á miðvikudaginn hafi atvik verið með þeim hætti að þingflokkur Vinstri grænna hafi óskað eftir því að málið væri ekki á dagskrá þá, en í dag er mánudagur og hæstv. innanríkisráðherra er hér í húsi. Þess vegna liggur beint við að halda sig við dagskrána þar sem ráðherrann er greinilega til viðtals og hefur hvatt til þess fyrr í dag að tekin verði góð umræða um málið. Það er þá ekki eftir neinu að bíða. Ég bið hæstv. forseta að upplýsa okkur um hvort standi ekki örugglega til að halda sig við auglýsta dagskrá.