Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Ég vil bregðast við ákalli frá hv. þm. Unni Brá Konráðsdóttur varðandi það að fá útskýringar á þeirri breytingu sem lögð er til í frumvarpinu og meiri hlutinn tekur undir um tekjur Ríkisútvarpsins. Er rétt að árétta að þarna er verið að leggja til að útvarpsgjaldið, sem tekið er af skattborgurum landsins, renni óskipt til Ríkisútvarpsins og röksemdin — þetta er reyndar reifað í frumvarpinu og var reifað í áliti meiri hlutans á síðasta þingi. Ástæðan er sú að menn telja að þetta sé farsælasta leiðin til að reyna að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði Ríkisútvarpsins og auka möguleika þess á að það sé ekki háð því á hverjum tíma að hið pólitíska vald geti valdið óeðlilegum sveiflum í fjárhag þessa fjölmiðils.
Það er mikilvægt að hafa í huga að þetta er mjög sérstakt fyrirbæri og þessi miðill hefur það hlutverk að hann þarf að fjalla um samfélagsleg málefni og veita almenningi upplýsingar um það sem efst er á baugi á hverjum tíma en fær lifibrauð sitt að miklu leyti frá þessari samkomu hér, frá löggjafarvaldinu. Það er skýringin á því að lagt er til að útvarpsgjaldið renni sem sagt alfarið til útvarpsins.
Það er rétt að vekja athygli á því að við áttum orðastað um þetta efni, ég og hv. þm. Ásbjörn Óttarsson, þegar ég flutti framsöguræðu mína og hann kom í andsvar við mig um nákvæmlega þetta atriði. Fjárlaganefnd benti vissulega á að þetta markmið um fjárhagslegt sjálfstæði væri mikilvægt en ætti að geta staðið óbreytt þó að fjármögnun væri ekki breytt frá því sem nú er en nefndi engar sérstakar leiðir í þeim efnum.