141. löggjafarþing — 87. fundur,  25. feb. 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[19:56]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef í stuttu andsvari kannski ekki tíma til að telja upp allar þær takmarkanir sem eru á hlutverki Ríkisútvarpsins. Þær eru meðal annars fólgnar í því að takmarkanir útvarpsins á auglýsingamarkaði eru allverulegar sem gerir það að verkum að það getur ekki tekið þátt í allri samkeppni við aðra fjölmiðla á sama hátt og annars væri hægt. Það eru líka töluverðar takmarkanir í 16. gr., eins og þingmanninum er kunnugt, og víðar í frumvarpinu.

Varðandi aukakostnaðinn er ég ekki svör með á reiðum höndum um hvernig eða hvar við munum ná í þá peninga. Ég tel að ágæt samstaða eigi að geta náðst í þinginu um að (Forseti hringir.) Ríkisútvarpinu verði skapaðir gjaldstofnar, einkum og sér í lagi þar sem þetta er almannaþjónusta og því mikilvægt að henni sé sköpuð sú staða sem þörf er á.