Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Frú forseti. Það er hárrétt hjá hv. þm. Ásbirni Óttarssyni að auðvitað er allt í samfélaginu spurning um forgangsröðun. Ég og hv. þingmaður getum væntanlega verið sammála um, og hann kom raunar inn á það í seinna andsvari sínu, að báðar stofnanirnar hafa mikilvægu hlutverki að gegna.
Ég ætla ekki að fara út í það sem ég vil kalla hráskinnaleik og segja að af því að við ætlum að setja peninga þangað getum við alls ekki sett þá hingað, og að þar sem þessi stofnunin er í svo miklum erfiðleikum þýðir það að við megum ekki tala um að önnur stofnun fái peninga. Það er held ég ekki góð stjórnsýsla. Við eigum sem löggjafarsamkunda að ákveða hvernig fjármunum ríkisins er varið. Ég treysti því að þingheimur bregðist ekki þeirri skyldu sinni, hvorki gagnvart Landspítalanum né Ríkisútvarpinu.