Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og þær upplýsingar sem komu fram og ég kallaði einmitt eftir í ræðu minni. Það mun þá draga úr tekjum Ríkisútvarpsins um 365 millj. kr. að mati ráðuneytisins vegna þeirra ákvæða sem eru í frumvarpinu og takmarka m.a. stöðu þess á auglýsingamarkaði. Hv. þingmaður segir að það sé mikilvægt að útvarpsgjaldið renni beint til Ríkisútvarpsins til að halda hinu pólitíska valdi frá og þar séum við ósammála um hvernig beri að fara með þetta. Það er allt í fínu lagi. Við getum ekki tekið rökræðuna öðruvísi. Ég er ekki að segja að allir eigi að vera mér sammála, en ég er hins vegar bara að benda á hið augljósa um aukningu útgjalda. Síðan koma alltaf þessi rök upp: Ríkisútvarpið hefur algerlega sérstöðu. Þá spyr maður: Hefur ekki Hæstiréttur algera sérstöðu? Hefur ekki forsetaembættið algera sérstöðu o.s.frv.?
Ég vil líka benda á í þessari umræðu að Alþingi setur regluverkið um útvarpsgjaldið, hvernig það er innheimt og ákveður upphæðina sem greidd er. Það ákveður líka hverjir eru undanskildir því vegna aldurs, eru of gamlir eða of ungir, eða annars, svo sem öryrkjar. Að mínu mati er því ekki verið að færa þessa línu eins langt frá og hv. þingmaður vill meina.
Síðan segir hv. þingmaður að ég tilheyri flokki sem skilji ekki eða geri lítið úr faglegu og fjárhagslegu sjálfstæði Ríkisútvarpsins. Mig langar að biðja hv. þingmann að útskýra betur hvað hann átti við með þeim ummælum.