141. löggjafarþing — 87. fundur,  25. feb. 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[20:31]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Við ræðum áfram um frumvarp til laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu. Falleg orð, frú forseti. Nokkuð hefur verið rætt um markaðar tekjur og tekjustofna. Ég held því fram, frú forseti, að markaðar tekjur séu andstæðar stjórnarskránni því að í henni segir:

„Ekkert gjald má greiða af hendi, nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum.“

Það er sem sagt Alþingi Íslendinga sem setur fjárlög eða fjáraukalög um útgjöld ríkissjóðs. Það getur ekki komið fram í einstökum frumvörpum eða lögum annars staðar. Ef það á að greiða eitthvað úr ríkissjóði verður það að standa í fjárlögum eða fjáraukalögum. Markaðir tekjustofnar eru þannig í andstöðu við þetta ákvæði stjórnarskrárinnar að mínu mati, frú forseti. Ég vildi gjarnan að það yrði skoðað ítarlega.

Svo segir í 40. gr. stjórnarskrárinnar:

„Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum.“

Skattlagningarvaldið er hjá Alþingi. Það er búið að leggja á útvarpsgjald, sem er skattur. Ráðstöfunarrétturinn, fjárveitingavaldið, er hjá Alþingi og hvergi annars staðar.

Ég ætla rétt aðeins að koma þessu að. Þess vegna held ég að þessir mörkuðu tekjustofnar og það sem stendur í þessu frumvarpi um að útvarpsgjaldið skuli renna til Ríkisútvarpsins standist bara ekki stjórnarskrá. Það er mjög einfalt.

Hér hefur verið umræða um að menn eigi nóga peninga í viss verkefni og ekki neina peninga í önnur verkefni, Landspítalinn var nefndur. Það eru fjöldamörg önnur verkefni sem knýja á um meiri fjárveitingar. Ég nefni atvinnuleysistryggingar, bætur til öryrkja og svo framvegis. Það er ekki bara hér sem menn eiga pening til þess að setja í ný verkefni, heldur vil ég minna á að umsókn um aðild að ESB kostar óhemju, jafnvel milljarða á ákveðnu árabili.

Það sem ég ætla að tala um fyrst og fremst eru ónot sem ég hef út í Ríkisútvarpið. Ég horfi eiginlega aldrei á RÚV, á sjónvarpið, en ég hlusta nokkuð reglulega á Rás 2. Þar lendi ég í því oft á tíðum þegar ég er búinn að flýta mér heim til að hlusta á fréttirnar klukkan sex, að þar er fótbolti í gangi. (Gripið fram í: Ansans.) Ansans, já, það er nefnilega fótbolti í gangi. Það virðast vera að fótboltamenn í landinu, eða ekki bara fótbolti heldur stundum handbolti eða aðrar boltaíþróttir sem ég hef eiginlega engan áhuga á, taka yfir dagskrána reglulega. Mér skilst á fólki sem eigi börn að börnin líði oft fyrir þetta. Þetta er látið viðgangast. Einhver þrýstihópur sem hefur gaman af boltaíþróttum yfirtekur stofnunina eða starfsemina. Einhvern tímann heyrði ég af fréttum af því að einhver úrslitaleikur eða eitthvað svoleiðis hafði verið í einhverri fótboltakeppninni eða handboltakeppninni, ég man ekki hvort það var, og þá var sagt frá því í miklum fréttum að helmingur þjóðarinnar hefði horft á úrslitaleikina. Það þótti mér merkilegt. Það sem það sagði mér var að helmingur þjóðarinnar horfði ekki. Hinn helmingur þjóðarinnar horfði ekki á viðkomandi leik og hafði ekki það mikinn áhuga á þessari boltaíþrótt að hann væri tilbúinn að horfa á úrslitaleik eða leiki, man ekki hvort það var, jafnvel þó ókeypis væru.

Svo kom hv. þm. Skúli Helgason, sem ég vil þakka fyrir að hann hafa verið ötull í málefnalegri umræðu um þetta mál, og sagði að auka þyrfti sjálfstæði stofnunarinnar undan íhlutun ríkisvaldsins. Frú forseti, hann sagði einmitt það sem ég hafði undirstrikað, að stofnunin er í eigu eins aðila sem heitir ríkið, með ákveðna kennitölu. Fyrir ríkinu fer hæstv. ríkisstjórn og hana styður stjórnarmeirihluti. Það fólk stjórnar þessum fjölmiðli sem eini eigandinn. Hv. þm. Skúli Helgason var eiginlega að staðfesta það sem ég hafði sagt, að Ríkisútvarpið fer að sjálfsögðu eftir þessum eina eiganda sínum og því þurfi að undanskilja fjárveitingavaldið frá Alþingi. Meiri hlutinn stýrir ekki bara með fjárveitingavaldi, hann getur nefnilega breytt öllum lögum um stofnunina hvenær sem er með tiltölulega stuttum fyrirvara.

Það sem ég ætla að tala um í þessari ræðu er hvernig ég sé fjölmiðla til skamms tíma, til fimm ára eða svo, og hvernig ég sé þá til langframa, til næstu 50 ára eða eitthvað svoleiðis. Til skamms tíma, ef maður horfir nokkur ár aftur í tímann, þá hefur orðið alveg gífurleg þróun á fjölmiðlamarkaði. Ég rek til dæmis ákveðinn fjölmiðil sem heitir Facebook. Á Facebook-síðunni minni kem ég skoðunum mínum á framfæri og þar er ég eins konar dagskrárstjóri. Ég þarf ekki að leita til Morgunblaðsins eða Ríkisútvarpsins eða Fréttablaðsins eða einhverra annarra aðila sem eru í eigu ákveðinna aðila, annaðhvort ríkisins eða annarra, ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því. Ég hugsa hins vegar að það ofurvald sem Ríkisútvarpinu er veitt í þessum lögum, og þeim lögum sem gilda hingað til, muni halda því á floti í kannski fimm ár að hámarki. Eftir það mun fjara undan risanum og hann verður að steindranga einhvers staðar eins og þekkt er úr þjóðsögum, tröllin urðu að steini. Þegar maður horfir til lengri tíma munu ófyrirséðir hlutir gerast varðandi fjölmiðlun þar sem almenningur mun taka þátt í henni í gegnum netið í vaxandi mæli, gegnum símana sína og svo framvegis. Þetta ofurvald ríkisins á fjölmiðlum mun hverfa. Þess vegna spurði ég áðan, frú forseti, hvort ekki væri ástæða til að hafa ríkisdagblöð líka og ríkisnetmiðla og svo framvegis, til að reyna að halda ákveðnu lífi í þessum ríkisrisa. Ég hugsa að þetta muni gerast fljótlega.

Ég hef nokkrum sinnum lagt fram frumvarp um að selja RÚV, tvisvar held ég. Þá vildi ég að útvarpsráð starfaði áfram og deildi út ákveðnum peningum og byði út til dæmis almannavarnaþáttinn. RÚV hefur tvisvar brugðist í hættulegri stöðu. Einhvern tímann varð jarðskjálfti á Suðurlandi, þá héldu menn áfram að senda út fótboltaleik. Það mátti ekki rjúfa þá dagskrá af því að hún var svo ógurlega mikilvæg fyrir þá sem horfðu á boltaleikinn. Svo kom einhvern tímann maður inn í útvarpið og bara hreinlega slökkti á því. Það var ekki gott fyrir öryggið.

RÚV hefur brugðist að þessu leyti varðandi almannavarnaþáttinn. Mér finnst miklu betra að bjóða þetta út. Ef einhver slökkti á þeim miðli væri því útboði alla vega kippt til baka og boðið út að nýju. Það má líka bjóða út fréttir. Þá mundu menn passa betur upp á að þær væru hlutlausar. Það mætti líka bjóða út skemmtiþætti og barnaefni og svo framvegis. Þá mundi myndast líf á þessum markaði, mikið líf sem er ekki til staðar í dag vegna þess að engin samkeppni er í fjölmiðlaheiminum nema náttúrlega á netinu. Þar er óskaplega mikil samkeppni og gróska sem mun væntanlega taka yfir eftir einhver ár. Þá er bara spurningin hvað gerist með RÚV, hvort það dagi bara ekki uppi eins og hvert annað tröll og verði að steini.