141. löggjafarþing — 87. fundur, 25. feb. 2013.
Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
194. mál
Forseti. Ég þakka hv. þm. Skúla Helgasyni fyrir andsvarið. Hann upplýsti að þær kostunartilkynningar sem þarna eru tilgreindar eigi við um þá sértæku atburði sem heimilt er að kalla eftir kostun á. Ég get fallist á að skerðingin eins og hún er hvað það varðar sé í lagi að svo komnu máli. Það hlýtur svo að verða seinni tíma mál að afnema kostun með öllu en ég þakka hv. þm. Skúla Helgasyni fyrir svarið.