Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Já, það hafa svo sem öll sjónarmið komið fram hvað þetta atriði varðar. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, margir hverjir, hafa haft af því áhyggjur að ekki væri verið að skilgreina nægilega þröngt hlutverk Ríkisútvarpsins. Það er þeirra skoðun. Það er ekki skoðun þess sem hér stendur að sérstök þörf sé á því að banna Ríkisútvarpinu að fjalla um tiltekin atriði eða sýna tiltekið efni á rásum sínum. Það kann að vera verkefni framtíðarinnar að knýja á um tiltekna skýrari forgangsröðun í því hvernig fjármunum þessarar stofnunar er varið eins og í öðrum stofnunum á vegum hins opinbera og það væri gagnleg vinna. En frumvarpið miðar að því að tryggja að Ríkisútvarpið geti sinnt með sóma því lýðræðislega, menningarlega og félagslega hlutverki sem er vel útlistað í frumvarpinu á sama tíma og við sköpum einkamiðlunum meira svigrúm til að athafna sig en þeir hafa fengið tækifæri til á undanförnum árum og áratugum. Ég tel að það sé talsverður árangur að ná að stíga það skref.