Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegur forseti. Framsóknarflokkurinn hefur ávallt viljað standa vörð um Ríkisútvarpið og hefur talið hlutverk þess mjög mikilvægt í okkar lýðræðislega samfélagi. Við viljum hafa öflugt og sterkt ríkisútvarp og höfum ekki lagt okkur í líma við að fjandskapast út í það eins og maður heyrir stundum í umræðunni, alls ekki. Samt er verið að hemja Ríkisútvarpið í þessu frumvarpi, það er verið að takmarka það á auglýsingamarkaði. Við styðjum þetta mál, við teljum að það sé til bóta. Það er verið að undirstrika mikilvægi Ríkisútvarpsins, meðal annars á landsbyggðinni, og það er vel og hér er líka verið að gæta að menningarlegu hlutverki. Þannig að við styðjum þetta mál. Ég vil sérstaklega taka það fram að allir flokkar hafa sameinast um þetta framfaramál nema einn flokkur sem er Sjálfstæðisflokkurinn. Vonandi koma þeir um borð í 3. umr. og vaktar voru ákveðnar væntingar um það hér áðan.