Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegur forseti. Hér er um nýmæli að ræða. Verið er að kveða upp úr um að Ríkisútvarpið eigi að kynna með ákveðinni aðferð framboð til kosninga og þjóðaratkvæðagreiðslna. Við skoðuðum tvær aðferðir, þ.e. þá aðferð sem hér er verið að leggja til, um að Ríkisútvarpið hafi ritstjórnarlegt vald á kynningunum, en líka þá aðferð að Ríkisútvarpið hefði ekki ritstjórnarlegt vald þannig að þetta yrðu bara meira eins og auglýsingar án endurgjalds. Við völdum þá leið að leggja til að Ríkisútvarpið hefði ritstjórnarlegt vald á þessum kynningum og ég styð það. Ég hefði hins vegar líka viljað, og tel að það geti farið saman, að flokkarnir fengju ákveðinn tíma, ákveðnar mínútur, þar sem þeir mundu kynna sig án endurgjalds. Það má vera að ég flytji breytingartillögu þar að lútandi við 3. umr.