141. löggjafarþing — 88. fundur,  26. feb. 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[15:24]
Horfa

Skúli Helgason (Sf):

Virðulegi forseti. Hér er stigið skref í átt til starfsmannalýðræðis í málefnum Ríkisútvarpsins. Það er mikilvægt, að mínu mati, að gera það með þeim hætti sem þarna er gert. Ég vek athygli á því, í ljósi orða síðasta ræðumanns í púltinu, að með frumvarpinu er einmitt verið, bæði með þessu ákvæði og öðrum, að auka sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt Ríkisútvarpsins frá hinu pólitíska valdi, en ekki minnka það eins og skilja mátti á orðum fyrrverandi menntamálaráðherra. Hv. þingmaður hafði á sínum tíma öll tök á því að gera allar þær breytingar sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa verið að tala um hér, en engin skref voru stigin í þeim efnum, hvorki til þess að takmarka umsvif (ÞKG: Komst ekki að fyrir málþófi hjá …) Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði né gera aðrar þær breytingar sem hefðu aukið og styrkt samkeppnisstöðuna á þessum mikilvæga markaði.