141. löggjafarþing — 88. fundur,  26. feb. 2013.

sameining rannsóknarnefnda í rannsóknarnefnd samgönguslysa.

609. mál
[15:41]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S):

Virðulegi forseti. Við fjöllum hér um hálfgerðan bandorm í raun og veru, frumvarp til laga um breytingar á lögum, vegna samþykktar í síðustu viku á frumvarpi um sameiningu rannsóknarnefnda flugslysa, sjóslysa og umferðarslysa í eina nefnd. Búið er að samþykkja það frumvarp og þess vegna þarf að flytja þennan bandorm sem hér er til umfjöllunar til að þær breytingar gangi eftir. Hér er fjallað um þær orðalagsbreytingar sem þarf að gera í ýmsum núgildandi lögum og eiginlega má líta svo á að þetta sé síðasta tilraunin til að láta hv. þingmenn kveikja á þeim mistökum sem voru gerð við samþykkt frumvarpsins um sameiningu nefndanna.

Það er óhætt að segja í upphafi að þetta sýnir kannski best þá forgangsröðun sem er í þinginu. Með samþykkt áðurnefnds frumvarps er verið að auka ríkisútgjöld. Enginn kallaði eftir því að það yrði samþykkt. Í raun og veru voru allir fagaðilar, sem ég leyfi mér að kalla svo, sem mest vit höfðu á málinu andsnúnir því að málið yrði samþykkt. Þetta kallar auðvitað á umræðu um forgangsröðunina í þinginu.

Það er líka mjög merkilegt, þegar maður talar um forgangsröðunina, að við skulum ekki vera að ræða þær tillögur sem liggja til að mynda fastar í nefndum þingsins og snúa að skuldavanda heimilanna, skuldavanda fyrirtækjanna o.s.frv., og hvernig sé hægt að koma til móts við heimili og fyrirtæki. Það er ekki gert.

Ég vil líka segja, þar sem ég sé að hæstv. utanríkisráðherra er að fara úr salnum, að eftir merkilega umræðu um þá tímamótasamþykkt í ríkisstjórninni þegar ákveðið var að setja Evrópusambandsumsóknina í hálfgerðan hægagang, hægja á ferlinu, held ég að hæstv. utanríkisráðherra hljóti að vera búinn að setja það á fulla ferð aftur eftir samþykkt landsfundar Vinstri grænna. Það er ekki eftir neinu að bíða. Það hlýtur að vera mjög eðlilegt að hæstv. utanríkisráðherra gangi hreint til verks og komi málinu á fulla ferð aftur. (Gripið fram í: Var það samþykkt?)

Þá ætla ég að fara örstutt yfir þetta mál sem hér um ræðir (Gripið fram í.) sem er í raun og veru sameining á rannsóknarnefndunum þremur í svokallaða rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Það vekur auðvitað furðu að þetta skuli hafa verið gert, eins og ég sagði í upphafi. Enginn kallaði eftir þessu og breytingarnar munu hafa í för með sér aukin ríkisútgjöld. Allir þeir aðilar sem fjölluðu um málið, sem ég leyfi mér að kalla í þessu tilfelli fagaðila sem hafa mestu þekkingu á málinu, voru andsnúnir samþykkt þessa frumvarps. Samt sem áður var það samþykkt því að að sjálfsögðu var hlustað á ráðuneytið og ráðherrann en ekki tekið mark á umsagnaraðilum.

Hverjir skyldu það nú vera, virðulegi forseti, sem bentu á að mjög óæskilegt væri að samþykkja þetta frumvarp? Það voru forustumenn allra sjómannafélaganna á landinu og Slysavarnafélagið Landsbjörg. Skyldu þeir aðilar hafa haft eitthvað annað í huga en velferð þessa málaflokks? Nei, það held ég ekki, virðulegur forseti. Ég held að það liggi ljóst fyrir að allir þeir sem fjalla um þessi mál bera mikla virðingu fyrir rannsóknarnefndunum og kunna að meta það sem að þeim snýr. En eins og svo oft áður er ekki hlustað á þá sem hafa mest vit á málunum eins og í þessu tilfelli. Það er mjög dapurlegt. Þetta var dapurlegur dagur þegar fyrra frumvarpið var samþykkt og það frumvarp sem við erum að fjalla um hér er í raun afleiðing af því.

Til að árétta þetta kemur skýrt fram í meirihlutaáliti hv. umhverfis- og samgöngunefndar að það sjónarmið hafi verið áberandi hjá fulltrúum frá núverandi rannsóknarnefndum að sameining nefndanna kynni að koma niður á faglegum þáttum rannsóknanna. Það er nú ekki minna en það, virðulegi forseti. Þar liggja áhyggjur þeirra aðila sem starfa við rannsóknarnefndirnar. Síðan má sjá í nefndarálitinu að fram hafi komið á fundi nefndarinnar önnur eða gagnstæð sjónarmið af hálfu ráðuneytisins. Á hvern er hlustað, virðulegi forseti? Það er hlustað á ráðuneytið en ekki á fagaðilana sem fjalla um þessi mál.

Það er auðvitað mjög dapurlegt að það muni koma niður á rannsóknum nefndanna og hlutverki þeirra ef þessi mál verða kláruð í heild sinni. Það verður líka að halda því til haga að þeir aðilar sem vinna í nefndunum hafa afskaplega mikið traust í störfum sínum og það er mjög mikils virði til að menn nái árangri. Og ef menn ná góðum árangri við rannsókn slysanna, hvort sem það eru umferðarslys, sjóslys eða flugslys, leiðir það auðvitað til þess að hugsanlega er hægt að koma í veg fyrir slys og þróa mál í þá átt að það sé til heilla fyrir alla. En það er ekki þannig heldur er gengin sú leið sem ég hef rakið hér.

Það er merkilegt og ágætt að rifja það upp að meiri hluti nefndarinnar virðist hafa haft efasemdir gagnvart málinu. Meiri hlutinn sem lagði til að málið yrði samþykkt ítrekar í áliti sínu að Alþingi hafi hér ákveðnu eftirlitshlutverki að gegna og verði að fylgjast sérstaklega grannt með þessu máli þannig að markmið lagasetningarinnar gangi eftir. Það er mjög mikilvægt.

Það er ekki hægt að sleppa því að nefna eitt í lok ræðu minnar, ég ætla ekki að tefja framgang þessa máls, ég hef gert það sem ég get til þess. Í raun og veru er ekkert annað að gera fyrir nýtt þing þegar það kemur saman eftir næstu kosningar en að fella þessi lög úr gildi. Eins og við vitum virðast þeir sem stóðu að samþykkt frumvarpsins ekki hafa umboð þjóðarinnar í skoðanakönnunum og þegar nýtt þing kemur saman kemur væntanlega nýr meiri hluti á Alþingi. Með öðruvísi skipan ríkisstjórnar er auðvitað fyrsta verkið sem þarf að vinna að fella þau lög úr gildi sem verið er að klára að samþykkja hér og hafa umhverfið í slysarannsóknum óbreytt því að það er auðvitað með eindæmum að menn skuli hafa farið í þessa vegferð.

Það er merkilegt og sýnir ráðaleysi og stjórnleysi ríkisstjórnarmeirihlutans að hér skuli menn að vera að ræða mál og samþykkja sem allir fagaðilar eru á móti og enginn hefur gert kröfu um að gera nema ráðuneytið. Það er ekki verið að fjalla um þau mál sem við ættum að vera að fjalla um; skuldavanda heimilanna og stöðu þeirra og stöðu löggæslunnar og heilbrigðiskerfisins. Nei, ekki er fjallað um það. Það er verið að eyða peningum í einhver mál sem allir eru á móti.