neytendalán.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Mósesdóttur fyrir andsvarið.
Það sem menn eru að reyna að gera í nefndinni til að koma til móts við þetta er að upplýsa um hver verðbólgan hefur verið eða neysluverðsvísitalan síðustu tíu árin einfaldlega vegna þess að menn vita ekki hvernig hún verður næstu mánuði, hvað þá næstu ár.
Mér finnst kjarni málsins vera þessi sem við þurfum að fá upplýst: Er það þannig — af því að fram kom í máli Elviru Mendez eins og hún túlkaði þetta og þessi sérfræðingur sem hún vísaði til, að það væri ekki bannað að hafa verðtryggt lán, en þú þarft að breyta því árlega, þ.e. ef það er inni í lántökuskilmálunum. Segjum að gert sé ráð fyrir 5% verðbólgu en svo telurðu að verðbólgan verði meiri á næsta ári, þá þarftu að breyta því og láta vita af því að þú ætlir að breyta því upp í 7% eða 8% eða hvað það nú væri. Mér finnst það í rauninni vera kjarni málsins því við viljum væntanlega fara eftir þeim tilskipunum sem eru í gangi. Þess vegna lagði ég áherslu á það að við þyrftum að fara vel yfir þann þátt málsins. Ég bara veit þetta ekki. Ég er ekki kominn á þann stað. Mér finnst við einhvern veginn vera að byrja að skoða það.
Síðan er annað mál, verðbólguskotið, sem ég hef skrifað margar greinar um og komið með ýmsar hugmyndir um. Ég hef áhyggjur af því fólki sem er núna með verðtryggð lán. Það er í sjálfu sér ekkert að neysluverðsvísitölu annað en það að mörg lán eru bundin þar. Verðbólgan eða neysluverðsvísitalan er mjög bundin af því hvort til dæmis innflutningur hækkar og … (Forseti hringir.) Ég get komið aðeins betur í þann þátt á eftir, en það er stórmál.