neytendalán.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér heildarlöggjöf um neytendalán. Markmið þessarar heildarlöggjafar sem kemur að mestu leyti frá framkvæmdastjórn ESB er að bæta neytendavernd og tryggja annars vegar að neytendur stofni ekki til skuldbindinga sem þeir ráða ekki við og hins vegar að neytendur geri sér grein fyrir því hvað lántakan kostar þá. Neytendalöggjöf hér á landi eins og ég sagði áður byggir að mestu leyti á ESB-tilskipunum, en lengra er gengið en ESB gerir ráð fyrir með því að færa fasteignalán undir þessa evrópsku löggjöf. Með því að setja fasteignalán undir skilgreininguna á neytendalánum fetum við okkur sömu leið og Norðurlöndin hafa farið að þessu leytinu til.
Mikilvægt er að trygga að lántakendur á neytendamarkaði fái allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til þess að geta metið kostnaðinn við lántöku, ekki síst er það mikilvægt í ljósi þess að fjármálalæsi hér á landi er verulega ábótavant. Þátttakendur í könnun á vegum Stofnunar um fjármálalæsi árið 2011 gátu aðeins svarað 47% spurninga rétt sem voru lagðar fyrir þá. Fjármálalæsi almennings hér á landi hefur því miður hrakað eftir hrun, eða frá árinu 2008, en á því ári svöruðu þátttakendur 53% spurninganna rétt.
Það kom jafnframt fram í sömu könnun á fjármálalæsi almennings hér á landi að færri einstaklingar halda heimilisbókhald nú en áður. Það kemur auðvitað mjög á óvart í ljósi þess hversu mikil kjaraskerðing hefur orðið eftir hrun og líka í ljósi þess að stöðugt fleiri segjast eiga erfitt með að ná endum saman. Maður hefði haldið að við slíkar aðstæður neyddist fólk frekar til að halda bókhald yfir útgjöld heimilisins.
Í ljósi þess að fjármálalæsi hér á landi er verulega ábótavant og fer hrakandi er að mínu mati óskiljanlegt hvers vegna námslán eru undanskilin í neytendavernd samkvæmt þessu frumvarpi til laga um neytendalán. Gera má gera ráð fyrir að um helmingur árgangs taki námslán og nýlegar upplýsingar frá LÍN gefa til kynna að að minnsta kosti um 300 manns sem hafa náð 67 ára aldri borgi enn þá af námslánum. Það eru því margir sem ná ekki að borga niður námslán sín á meðan þeir eru á vinnumarkaði og afla tekna. Það er í raun afar óeðlilegt og eitthvað sem þarf að taka á, m.a. því að afskrifa námsskuldir eftir að taka lífeyris hefst. Þannig er málum ekki háttað hér á landi og stöðugt stærri hópur þeirra sem fer á ellilífeyri þarf jafnframt að greiða af námslánum.
Því er nauðsynlegt að gera fólki grein fyrir því að það getur átt á hættu að þurfa að framfleyta sér á lágum lífeyri og borga jafnframt fastagreiðsluna af námslánum sem tekin voru fyrir 30, 40 árum, en ekki hefur náðst að greiða að fullu niður.
Virðulegi forseti. Það sem er til bóta í breytingartillögum hv. meiri hluta viðskipta- og efnahagsnefndar er ný skilgreining á lánshæfi. Sú skilgreining takmarkast við það að lánshæfismatið felur bara í sér mat á vanskilasögu. Greiðslumatið felur síðan í sér mat á því hvort viðkomandi geti greitt lánið.
Önnur breytingartillaga sem er til bóta er hækkun upphæða sem fara þarf yfir við lántöku til að krafan um lánshæfismat og mat á greiðslugetu eigi við. Hér er verið að koma í veg fyrir að þrengt sé um of að möguleikum lántakenda til að slá lán sem þeir ættu auðveldlega að geta staðið undir þar sem um er að ræða tiltölulega lágar upphæðir.
Mesta neytendaverndin í breytingartillögum hv. meiri hluta viðskipta- og efnahagsnefndar er breytingartillagan sem er við 21. gr., en sú grein fjallar um árlega hlutfallstölu kostnaðar. Í breytingartillögunni er lagt til að við útreikninga á kostnaði vegna verðtryggðra lána verði verðbólga síðastliðinna 12 mánaða tekin inn í. Fram til þessa hefur það verið þannig í öllum reiknivélum bankanna að þegar metinn er lántökukostnaður verðtryggðra lána gera vélarnar ráð fyrir því, í samræmi við lög, að verðbótaþátturinn eða verðbólgan sé núll. Þessir útreikningar á því hvað fólk greiðir í raun og veru fyrir til að fá þetta lán gefa því mjög skakka mynd af heildarlántökukostnaði. En fram til þessa hafa verðbætur verðtryggðra lána ekki verið teknar með inn í útreikninga á kostnaði vegna lántökunnar.
Ég fagna þessari breytingartillögu og styð hana þar sem hún gefur betri mynd af því hvað það kostar lántakendur að taka lán og ætti líka að gefa raunhæfara mat á því hvort viðkomandi einstaklingur geti staðið í skilum af láninu.
Þessi breytingartillaga tryggir líka að notkun okkar á vaxtahugtökum muni samræmast venjum erlendis. Í öllum erlendum hagfræðibókum eru vextir skilgreindir þannig að þeir eru nafnvextir plús verðbætur, eða verðbólga. Löggjafinn hefur fram til þessa ýtt undir lélegt fjármálalæsi með því að skilgreina raunvexti verðtryggðra lána sem vexti. Skal þá engan undra að fólk geti ekki svarað spurningunni um hvað séu raunvextir rétt í könnunum á fjármálalæsi.
Virðulegi forseti. Ofangreind breytingartillaga hv. meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar gæti leitt til þess að margir álíti að nú sé búið að tryggja að lántakendur hafi góða mynd af lántökukostnaðinum. Því miður tryggir tillagan ekki að lántökukostnaður geti orðið mun meiri en útreikningar sýndu í upphafi. Ástæðan er sú að útreikningarnir byggjast bara á verðbólgunni eins og hún hefur verið síðastliðna 12 mánuði. Hér getur verðbólga breyst mjög mikið milli ára. Ef maður er svo heppinn eða óheppinn að taka lán stuttu eftir tímabil þar sem verðbólga hefur verið tiltölulega lítil má búast við því að maður þurfi að borga meiri lántökukostnað en greiðsluáætlunin gerði ráð fyrir.
Það er með öðrum orðum, virðulegi forseti, ekkert sem kemur í veg fyrir það að greiðsluáætlunin standist ekki og ekki heldur að lántökukostnaðurinn fari upp úr öllu valdi.
26. gr. frumvarpsins heitir Hámark árlegrar hlutfallstölu kostnaðar. Þetta heiti gefur til kynna að það sé nokkurs konar þak á lántökukostnaðinum. Það er að mínu mati mjög villandi vegna þess að við 50% sem lántökukostnaður má vera sem hlutfall af heildarupphæð lánsins á að bæta við stýrivöxtum. Í landi þar sem er verðtrygging eru miklar sveiflur í stýrivöxtum vegna þess að miðlunarferlið virkar ekki eins og í öðrum löndum. Það þarf því að hækka stýrivexti mjög mikið til þess að þeir fari að bíta eða draga úr þenslu. Að vissu leyti ætti líka að þurfa að lækka þá mjög mikið til að örva atvinnulífið, en það höfum við reyndar ekki séð Seðlabanka Íslands gera.
Það að setja inn ákvæði um einhvers konar hámark eða þak á lántökukostnaðinn er því mjög villandi í landi með víðtæka verðtryggingu. Fyrirmyndin er sótt til Finnlands og reyndar er þetta eiginlega beint upp úr finnsku löggjöfinni. En það má segja að í samanburði við Finnland muni lántökuþakið breytast margfalt meira hér vegna þess að stýrivextir í Finnlandi eru núna 1% og hafa ekki fram til þessa sveiflast jafnmikið og hér á landi.
Virðulegi forseti. Við erum ekki með þak á hlutfallslegan lántökukostnað eins og gefið er til kynna í frumvarpinu heldur erum við með breytileg mörk. Mörkin eru þannig að þau breytast til að tryggja það að lántakendur taki á sig allt verðbólguskotið. Um leið og verðbólga eykst hér á landi hækkar Seðlabankinn stýrivexti og tryggir þar með, ef við samþykkjum frumvarpið, að skotið lendi allt á lántakendum.
Virðulegi forseti. Það er tvennt sem skiptir máli að verði lagað í frumvarpinu og þeim breytingartillögum sem hv. meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar hefur lagt fram. Það er í fyrsta lagi að tryggja að lántakendur sem ætla sér að taka verðtryggð lán fái raunsæja mynd af því hversu hár verðbótaþátturinn muni verða á lánstímanum. Þessu markmiði er aðeins hægt að ná með því að upplýsa ekki bara um hver verðbólgan hefur verið síðastliðin tíu ár heldur að setja meðaltalið síðastliðin tíu ár inn í útreikningana á verðbótaþættinum.
Síðan er annað atriði sem skiptir máli að laga. Við hv. þm. Eygló Harðardóttir höfum gert breytingartillögu við 26. gr. um að taka út þann hluta setningarinnar um hámark árlegrar hlutfallstölu kostnaðar sem leyfir að bæta stýrivöxtum ofan á 50% og tryggja, virðulegi forseti, raunverulegt þak á lántökukostnaðinn. Við förum þá sömu leið og kanadísk yfirvöld hafa farið, en þar má þakið aðeins vera 60% — ég væri tilbúin að ræða hækkun upp í 60% af heildarupphæð lánsins. Við verðum að gera allt til að koma í veg fyrir að það séu fyrst og fremst lántakendur sem taka á sig verðbólguskotið. Við getum gert það með því að hafa bara þessa prósentutölu og taka út stýrivextina sem á að bæta við.
Það yrði mesta réttarbót sem lántakendum, íslenskum heimilum, yrði fært hér á landi ef við mundum gera smávægilega breytingu á texta frumvarpsins og fella brott orðin „að viðbættum stýrivöxtum“ í 26. gr. Þar með værum við búin að tryggja að verðbólguskoti yrði deilt á milli lántakenda og lánveitenda á sanngjarnan hátt.
Virðulegi forseti. Ég skora á hv. meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar að taka á þessum tveimur vandamálum sem ég sé núna við frumvarpið og breytingartillögum hans og tryggja að lántakendur hafi raunsæja mynd af því hver verðbótaþáttur verðtryggðra lána gæti orðið og það sé í raun og veru þak á lántökukostnaðinum með því að hafa bara ákveðna prósentutölu, hún er núna 50%. Eins og nú er eiga stýrivextirnir síðan að bætast við, stýrivextir sem eru mjög breytilegir hér á landi, mun breytilegri en nokkurs staðar annars staðar. Því vil ég að við höfum bara prósentutöluna og ræðum jafnvel að taka upp sömu prósentutölu og er í Kanada.