neytendalán.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Mósesdóttur fyrir ræðu hennar. Þegar hún talaði um námslánin hnaut ég um að þau skyldu vera undanskilin frumvarpi um neytendalán. Hæstv. menntamálaráðherra hefur tilkynnt og ríkisstjórnin samþykkt, að mér skilst, að leggja fram frumvarp varðandi breytingar á námslánum þannig að hluti af námslánum breytist í styrk og að við 67 ára aldur falli skuldbindingar lántaka niður, eins og ég skil það.
Telur hv. þingmaður að þessar breytingar á fyrirkomulagi námslána gangi það langt að ekki sé nauðsynlegt að setja námslánin undir þessi lög? Telur hv. þingmaður mikilvægt að upplýsa væntanlega námsmenn betur en nú er gert um þá skuldbindingu sem þeir taka á sig með því að taka námslán?