neytendalán.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Eygló Harðardóttur fyrir ágæta yfirferð yfir málið. Hún talar um að taka ætti ákvörðun frá dómstólum um ákveðin deilumál. Ég spyr: Myndast þá ekki kröfuréttur á ríkissjóð? Við erum með eignarréttarákvæði í stjórnarskránni, um að eignarrétturinn haldi, og ef löggjafinn fer að breyta forsendum deilumála á annan hvorn veginn gæti annar hvor aðilinn hugsanlega unnið málið og mun þá gera kröfu á ríkissjóð um bætur. Þegar við brjótum þrískiptingu valdsins og förum með löggjafarvaldið inn í dómsvaldið þá gæti það valdið skaðabótakröfu á ríkissjóð.
Ef við göngum út frá 2,5% raunvöxtum, sem er ekkert voðalega hátt, mjög lágt í rauninni, og 4% verðbólgu, þá erum við að tala um 7% nafnvexti sem er reyndar undir því sem býðst hjá bönkunum í dag. Hvernig á fólk með lágar tekjur að borga slíka vexti, sem koma út sem tæplega 160 þús. kr. greiðslubyrði á mánuði á meðan verðtryggt lán með nákvæmlega sömu raunvöxtum, 2,5%, vegna þess að það flytur kostnaðinn aftur fyrir sig, kostar ekki nema 70 þús. kr., helmingi minna, meira en helmingi minna. Þær reglur að banna verðtryggingu gætu gert það að verkum að lágtekjufólk getur ekki keypt íbúð.
Ég spyr hv. þingmann: Ráðleggur hún fólki að taka óverðtryggð lán í bönkunum sem falla alveg undir tilskipunina, allt voðalega fínt, en hækka hugsanlega eða lækka eftir 5 ár? Svo er það hin hliðin á medalíunni, það er sparnaðurinn. Hver á að spara? Hvaðan eiga peningarnir að koma, hver er uppspretta fjármagnsins? Hefur hv. þingmaður velt því fyrir sér?