141. löggjafarþing — 88. fundur,  26. feb. 2013.

neytendalán.

220. mál
[17:59]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Eygló Harðardóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri H. Blöndal fyrir fyrirspurnina. Varðandi fyrstu spurninguna þá veit ég ekki hvort hv. þingmaður heyrði rétt það sem ég var að segja. Ég var að vitna í frumvarpið sjálft þar sem verið er að tala um 10. gr., held ég hafi verið, en í frumvarpinu er ekki verið að taka afstöðu til stöðu lánasamninga þegar lánað er án þess að lánshæfismat fari fram eða greiðslumat. Hér er verið að leggja til að þess verði krafist að fram fari lánshæfis- og greiðslumat. En við ætlum bara að segja: Bíddu, ef þú gerir það ekki, þá bara úps, sorrí, það er bara eitthvað sem kemur löggjafanum ekki við. Í frumvarpinu er dómstólum látið eftir að móta framkvæmd á því sviði í staðinn fyrir að löggjafinn segi bara skýrt hver viðurlög eru við því þegar lánshæfis- eða greiðslumat er ekki framkvæmt og að sjálfsögðu er það það sem við eigum að gera sem löggjafi. Við eigum ekki að skilja það eftir hjá dómstólum að vega það og meta.

Varðandi fyrirkomulagið með nafnvextina þá hefur það verið mín afstaða að verðtryggingin í sjálfu sér skapar peninga, prentar peninga, og eykur þar með líkur á verðbólgu. Vextir líka — ég veit að hv. þingmaður tekur undir það að vextir eru ekkert annað en verð á peningum. Ég tel að verðmyndun á peningum hér á Ísland hafi að mörgu leyti verið skökk og ég er að vonast til þess að með þeim tillögum sem minn flokkur er að tala fyrir, og ég hef verið að tala fyrir, getum við búið til heilbrigðara kerfi með réttari verðmyndun, meðal annars á íbúðabréfum. (Forseti hringir.)

Ég fæ að koma upp í seinna andsvar og halda áfram að svara þingmanninum. Þetta eru mjög áhugaverðar spurningar sem við erum að ræða um.