neytendalán.
Virðulegi forseti. Ég er sammála því að lífeyrissjóðirnir taki sér þá vexti sem þeir telja sig geta tekið en það er aftur á móti spurning hvort ekki þurfi að veita þeim meira aðhald og ná vaxtastiginu niður þannig að þeir dragi úr áhættufjárfestingum og tapi minna. Ég tel nefnilega að þetta háa vaxtastig geri þeim kleift að tapa meiru en almennt gerist um fagfjárfesta eins og lífeyrissjóði. Það sé með öðrum orðum ekki nógu mikið aðhald, að vaxtastigið í landinu veiti þeim ekki nógu mikið aðhald.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála mér um ávinninginn af afnámi verðtryggingar sem felst í því að við afnámið munum við draga úr peningaprentun í hagkerfinu. Þegar verðbólga er að minnsta kosti 2% leiðir verðtryggingin til þess að bankarnir fá meiri hagnað af verðtryggðum lánum þar sem þeir eru ekki með verðtryggingarjöfnuð á eignahlið sinni og skuldahlið; þessi hagnaður fer út í samfélagið og veldur verðbólgu sem síðan hækkar verðtryggðu lánin.
Annar ávinningur af því að afnema verðtrygginguna er sá, eins og Ólafur Margeirsson hefur bent á, að nafnvextir munu lækka verulega. Þeir eru nú það háir að fæst heimili standa undir þeim. Síðan er þriðji ávinningurinn sá að við það að lækka nafnvexti á fasteignalánum mun sparnaður heimilanna aukast og meira framboð verður af lánsfjármagni, sem mun aftur lækka vaxtastigið.