neytendalán.
Virðulegi forseti. Þetta var mjög áhugavert. Það er margt sem við hv. þingmaður erum sammála um. Við þurfum að horfast í augu við það, eins og þingmaðurinn talaði um, að með breyttu lánafyrirkomulagi erum við ekki að gera fólki auðvelt að skuldsetja sig. Við verðum því að skoða hvað getur komið í staðinn. Ég nefndi þessa fjölbreytni varðandi húsnæðismarkaðinn sem ekki er til staðar hér. Menn hafa talað um 25% en í skýrslu samráðshóps um húsnæðisstefnu var talað um 13%, leiguíbúðir á Íslandi, þannig að þetta er mjög lágt hlutfall.
Á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í gær kom ýmislegt áhugavert fram. Meðal annars kom fram í máli aðalhagfræðings Seðlabankans að hann teldi að núverandi sparnaðarfyrirkomulag hjá íslenskum heimilum þyrfti að breytast. Hann talaði um að þetta væri bundið, það hefði sýnt sig í hruninu að sparnaðurinn væri mjög bundinn. Hann væri annars vegar í lífeyrissjóðunum og svo væri hann í fasteignum. Að hans mati hafi það verið mjög góð ákvörðun að leyfa fólki að taka út séreignarsparnaðinn sinn til að reyna að draga úr högginu sem hv. þingmaður hefur bent á að skipti verulega miklu máli.
Með því að breyta sparnaðarfyrirkomulaginu væri tiltölulega auðvelt að gera það sem hv. þingmaður er að tala um að lífeyrissjóðirnir séu að fjárfesta í öruggari fjárfestingum en síðan mundi losna um annað fjármagn sem gæti þá farið meira í áhættusamari fjárfestingar. Nú erum við að ýta lífeyrissjóðunum út í áhættusamari fjárfestingar sem eykur áhættuna hjá þeim og líkur eru á því að þeir tapi þá peningum og geri auknar kröfur um aukna arðsemi annars staðar.
Hinn punkturinn sem ég hef verið mjög hugsi yfir er það sem seðlabankastjóri sagði um peningastefnuna í Singapúr, að þeir væru að skoða það af fullri alvöru að leggja þessi verðbólgumarkmið svolítið til hliðar, þau stýritæki sem hafa verið þar, og horfa frekar til gengismarkmiða til að reyna (Forseti hringir.) að halda verðbólgunni stöðugri. Þú ert með sama markmið en aðrar leiðir. (Forseti hringir.) Þetta er eitthvað sem við þurfum að ræða mun betur.