stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.
Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 64/2010, um stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík, með síðari breytingum. Núgildandi lög byggjast í stuttu máli á því að leitað verði eftir samvinnu og samstarfi við framkvæmdar- og fjármögnunaraðila í kjölfar auglýsingar og útboðs til að fjármagna og byggja nýjan Landspítala í tilteknum áföngum. Stofnað var sérstakt opinbert hlutafélag sem heitir Nýr Landspítali ohf. til að undirbúa framkvæmdirnar og standa síðan fyrir útboði verkefnisins.
Gert var ráð fyrir því að ríkið mundi, að fengnu samþykki Alþingis, ganga til langtímasamninga við lægstbjóðendur um leigu á einstökum byggingaráföngum að útboði loknu. Eins og fram hefur komið á opinberum vettvangi og í minnisblaði sem kynnt var og skýrslum sem kynntar voru, núna síðast á haustdögum, og dregnar fram, hefur komið í ljós að sú leið sem oft hefur verið nefnd leiguleiðin er ekki jafngóður kostur og talið var í fyrstu. Þess vegna er talið rétt að hverfa frá henni og leggja til að þessu verði breytt að forminu til yfir í opinbera framkvæmd.
Opinbera hlutafélagið Nýr Landspítali hefur hins vegar á undanförnum árum unnið mjög vel að framgangi verkefnisins í samráði og samvinnu við helstu hagsmunaaðila þess. Því er lagt til að þrátt fyrir að verkefninu verði breytt í hefðbundna opinbera framkvæmd verði félagið áfram starfandi og þá með breyttu hlutverki.
Þeir þættir sem helst skipta máli varðandi meginniðurstöðu frumvarpsins eru ítarlega raktir í athugasemdum þess. Ég vil þó sérstaklega draga fram fjóra þætti sem helst hafa leitt til þessarar niðurstöðu, þ.e. að hverfa frá leiguleiðinni á stóru byggingunum og fara með þær í opinbera framkvæmd.
Í fyrsta lagi hefur alltaf komið betur í ljós að vegna hinnar sérstöku og flóknu starfsemi sem fram fer á spítala sem þessum var nauðsynlegt að ganga mun lengra í forhönnun bygginganna en upphaflega hafði verið reiknað með. Auk þess hafa verið færð fram sterk rök af hálfu spítalans um að rétt kunni að vera að undanskilja veigamikla þætti eins og viðhald eignarinnar að innan og utan á leigutímanum og að spítalinn sjálfur sinni því samhliða viðhaldi eldri eigna sinna. Verkefnið hefur því alltaf meira og meira þróast í þá átt að minnka svigrúm framkvæmdaraðilans sjálfs til hönnunar á verkefninu. Samstarfsverkefni sem þessi ganga almennt út á það að allir aðilar hafi hag af því að leggja slíkar lausnir til. Sé þetta svigrúm þrengt verulega má segja að fyrir hendi séu sterkar vísbendingar um að verkefnið henti ekki sérstaklega vel í slíkt samstarf og að rétt geti verið að athuga með aðrar lausnir á málinu.
Í öðru lagi hefur alltaf betur komið í ljós að mjög fáa nægjanlega fjársterka framkvæmdaraðila sé að finna hérlendis sem hafa nægilega fjárhagslega burði til að taka að sér verkefni af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir. Þessir aðilar eru þó vel færir um að taka að sér hinn byggingarfræðilega þátt framkvæmdanna en varðandi stærstu verkþættina, t.d. byggingu meðferðarkjarnans, verður að telja mikinn vafa leika á, samkvæmt upplýsingum Samtaka iðnaðarins, að eiginfjárstaða stærstu íslensku verktakafyrirtækjanna sé með þeim hætti að þeir komi til með að geta borið þá áhættu sem felast mun í verkefni af þessari stærðargráðu þrátt fyrir að þeir hafi trygga langtímaleigusamninga við ríkið í höndunum. Með áhættu að þessu leyti er til dæmis átt við hefðbundna byggingaráhættu á framkvæmdatíma, til að mynda að verkið fari ekki umfram fjárhagsáætlanir. Það er ekki að sjá að þessir aðilar geti tekið að sér fjármögnun stærsta og jafnvel næststærsta verkþáttarins nema með verulegri áhættutöku fjárhagslegra bakhjarla.
Í þriðja lagi og þessu nátengt hafa komið fram sterkar vísbendingar um það frá fjármálastofnunum, þar á meðal lífeyrissjóðum, að tregðu muni gæta hjá þeim við að fjármagna verkefnið eða taka þátt í því með öðrum hætti, eins og upphaflega hafði verið gert ráð fyrir. Miðað við það sem fram hefur komið á fundum fulltrúa Nýs Landspítala ohf. með fulltrúum lífeyrissjóðanna má ætla að aðkoma þeirra byggist á því að aðrir en sjóðirnir taki á sig stærstan hluta áhættunnar af verkefninu. Í verkefni sem þessu er ekki öðrum til að dreifa að þessu leyti en verktakanum, fjármögnunaraðilanum eða verkkaupanum. Sjóðirnir hafa í þessu sambandi hins vegar ítrekað nefnt við fulltrúa félagsins að þeir væru ávallt tilbúnir til viðræðna við ríkissjóð um fjármögnun framkvæmdanna með öðrum hætti, t.d. með lánveitingu til ríkissjóðs, enda lægju þá fyrir fullnægjandi tryggingar vegna verkefnisins. Ekki er heldur talið líklegt að aðrar fjármálastofnanir muni treysta sér til að standa að baki verktökum við fjármögnun stærstu verkhlutanna nema þeir hafi yfir að ráða verulegu eigin fé eða njóti einhvers konar trygginga af hálfu ríkisins verði kostnaður meiri en áætlanir gera ráð fyrir.
Í fjórða og síðasta lagi hefur verið byggt á því að mánaðarlegum útgjöldum vegna leigugreiðslna sé jafnað yfir líftíma eignarinnar í bókhaldi ríkisins í stað þess að allur kostnaður sé gjaldfærður við upphaf framkvæmda eins og gert er við opinberar framkvæmdir. Á síðustu missirum hefur hins vegar, samhliða þeirri þróun verkefnisins sem ég hef rakið hér á undan, verið talsverð umræða, bæði á alþjóðavettvangi og líka hjá íslenska ríkinu, um hvernig fara eigi með langtímaskuldbindingar sem þessar í ríkisreikningi. Þeirri skoðun hefur vaxið ásmegin að gera eigi mun ríkari kröfur en verið hefur um færslu slíkra skuldbindinga. Þessi umræða hefur síðustu missiri fengið enn meiri athygli í ljósi þess samdráttar sem nú er í efnahagslífi umheimsins og skuldsetningu ríkja. Ljóst er að ef fjárhagsleg áhætta vegna verkefnisins er með einhverjum hætti færð til ríkisins, t.d. í formi ríkisábyrgða eða áhættutöku ríkisins vegna umframkostnaðar verkefnisins, er veruleg hætta á að færa þurfi heildarskuldbindingar verkefnisins í ríkisreikning á framkvæmdatíma verkefnisins en ekki verði unnt að færa einungis einstakar leigugreiðslur eftir því sem þær greiðast. Það mundi þá þýða að framkvæmdaraðilinn mundi í raun stjórna því á hvaða hraða slíkar skuldbindingar féllu á ríkið en ekki ríkið sjálft. Þetta er nánast hægt að fullyrða að yrði raunin ef ríkið mundi með einhverjum hætti þurfa að taka á sig áhættu einkaaðilans vegna byggingarkostnaðar eða endanlegs heildarkostnaðar, t.d. í formi hækkunar á leigugreiðslum vegna slíkra kostnaðarhækkana eða með einhverju formi ríkisábyrgðar.
Með hliðsjón af þessum þáttum er í frumvarpinu lagt til að snúið verði frá hinni svokölluðu leiguleið, eins og ég nefndi áðan, og verkefnið fært í hið hefðbundna ferli opinberra framkvæmda í samræmi við lög þar um.
Ég legg hins vegar áherslu á það, virðulegi forseti, að lögfesting frumvarpsins hefur ekki í för með sér að verið sé að stofna til þeirra útgjalda sem felast í byggingu Nýs Landspítala. Hér er einungis verið að formbreyta þeirri aðferðafræði við byggingu sjúkrahússins sem unnið hefur verið eftir á undanförnum árum eftir að tekin var ákvörðun um að ráðast í byggingu nýja spítalans.
Verði frumvarp þetta að lögum mun það hafa í för með sér að Alþingi mun, við gerð fjárlaga á þessu ári og næstu árum, taka afstöðu til framhalds þessa verkefnis og forgangs þess miðað við önnur verkefni ríkisins eins og almennt gildir um aðrar framkvæmdir ríkisins. Þetta mun hins vegar hafa þá jákvæðu afleiðingu í för með sér að allar líkur eru á því, ef við förum þessa leið, að hinn innlendi verktaka- og hönnunarmarkaður muni hafa alla burði til að bjóða í flesta þætti verkefnisins verði ákveðið að hefja framkvæmdir.
Ef ég fer aðeins yfir greinarnar, en frumvarpið er stutt þó að stórt sé, eru í 1. gr. þess lagðar til tvær meginbreytingar á 1. gr. laganna. Annars vegar er lagt til að 1. mgr. 1. gr. laganna verði endurorðuð og afmörkuð á þann hátt að markmið og tilgangur Nýs Landspítala ohf. verði að standa að nauðsynlegum undirbúningi útboðs byggingar Nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Breytingin felur í sér að hlutverk félagsins verður þrengra en í núgildandi lagagrein þar sem ekki er lengur til staðar heimild til að semja um að ríkið taki byggingarnar á langtímaleigu að loknu útboði. Jafnframt hefur breytingin það í för með sér að fellt er niður það skilyrði að fyrir undirritun samninga að loknu útboði skuli leita samþykkis Alþingis með almennum lögum fyrir töku tilboða. Ástæða þess er sú að verði frumvarp þetta að lögum munu lög um skipan opinberra framkvæmda gilda um verkefnið, eins og áður sagði, og Alþingi mun því koma með hefðbundnum hætti að ákvörðun árlegra fjárveitinga til verkefnisins, eins og almennt gildir um aðrar opinberar framkvæmdir á vegum ríkisins. Ekki er því þörf á því að þingið komi sérstaklega að verkefninu að loknu útboði eins og gert var ráð fyrir samkvæmt hinni svonefndu leiguleið.
Hins vegar er síðan lagt til að 2. mgr. 1. gr. núgildandi laga verði felld brott vegna þess að í því ákvæði er mælt fyrir að ráðherra sé heimilt að leggja félaginu til hluta þeirra lóðarréttinda sem spítalinn hefur yfir að ráða við Hringbraut undir bygginguna. Samkvæmt hinni svokölluðu leiguleið var gert ráð fyrir að lóðirnar yrðu færðar yfir til Nýs Landspítala sem mundi gera samninga um nýtingu þeirra við framkvæmdaraðila. Verði frumvarp þetta að lögum má ætla að ákvæðið sé óþarft, enda munu fyrirhugaðar byggingar þá verða í eigu ríkisins og reistar á landi ríkisins og á landi sem ríkið hefur yfirráðarétt yfir samkvæmt samningum við Reykjavíkurborg.
Í 2. gr. frumvarpsins eru lagðar til þrjár breytingar á 2. gr. laganna. Í fyrsta lagi er lagt til að því verði slegið föstu í 1. mgr. laganna að um fullnaðarhönnun, byggingu og útboð hins nýja spítala skulu að öðru leyti gilda lög um skipan opinberra framkvæmda. Með þessari breytingu mun hið hefðbundna regluverk ríkisins um opinberar framkvæmdir gilda um verkefnið verði frumvarpið að lögum. Velferðarráðuneytið mun samkvæmt lögum um skipan opinberra framkvæmda hafa mun meiri aðkomu að verkefninu enda er það hlutverk fagráðuneytis að gera tillögur um fjárheimildir til verkefnisins og um röð einstakra framkvæmda til ákvörðunar við gerð fjárlagafrumvarpsins. Á grundvelli fjárstjórnarvaldsins mun Alþingi síðan eiga lokaorðið um fjárveitingar til þessara framkvæmda á grundvelli þeirra fjárlagatillagna sem lagðar hafa verið fram.
Í öðru lagi er lagt til, vegna þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á markmiðum og tilgangi félagsins, að í 3. mgr. 2. gr. laganna verði vísað til 1. mgr. 1. gr. laganna í tengslum við verkefni félagsins.
Í þriðja lagi er lagt til að lögfest verði ný málsgrein sem mælir fyrir um að ráðherra sé heimilt, þrátt fyrir stefnubreytingu sem lögð er til með frumvarpinu, að ákveða að tilteknir skýrt afmarkaðir minni byggingarhlutar, eða byggingar, séu boðnir út í formi langtímaleigu telji hann það þjóna heildarhagsmunum verkefnisins. Í greininni er lagt til að ekki verði þrengdar um of heimildir ríkisins til að taka á leigu einhverja hluta af byggingum sjúkrahússins sé það talið hagkvæmt fyrir verkefnið enda sé þá tryggt að slík leiga uppfylli þau skilyrði sem ríkið setur fyrir slíkri leigu og fjallað er um í athugasemdum með frumvarpinu.
Í 3. gr. frumvarpsins er lagt til að 5. gr. laganna falli brott. Í 5. gr. gildandi laga er mælt fyrir um það hvenær félagið skuli taka til starfa og að upplýsingalög skuli gilda um starfsemi þess. Þessi grein er nú orðin óþörf. Ástæða þess er annars vegar sú að félagið hefur verið starfandi um langt skeið og því óþarfi að taka fram hvenær félagið skal hefja rekstur og hins vegar vegna þess að mælt er sérstaklega fyrir um það 2. mgr. 2. gr. nýsamþykktra upplýsingalaga að lögin taki til allrar starfsemi lögaðila sem eru að 51% hluta eða meira í eigu hins opinbera. Upplýsingalögin eiga því ótvírætt við um starfsemi félagsins og ákvæðið því óþarft.
Í 4. gr. frumvarpsins er lagt til að heiti laganna verði breytt. Félagið Nýr Landspítali ohf. var stofnað um mitt ár 2010 og hefur verið starfandi síðan. Þar sem sú breyting sem hér er lögð til snýr að því að færa verkefnið aftur í það ferli sem verkefnið var í fyrir stofnun félagsins er eðlilegt að heiti laganna snúi ekki einungis að félaginu sem slíku. Því er lagt til að heiti þeirra verði breytt í lög um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík í stað núverandi heitis sem er lög um stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.
Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið að með þessu frumvarpi er verið að gera þá óhjákvæmilegu formbreytingu vegna byggingar nýs Landspítala að í stað svokallaðrar leiguleiðar verði um að ræða hefðbundna opinbera framkvæmd. Í ljósi umfangs verkefnisins og sérstöðu er lagt til að félagið sem stofnað var utan um framkvæmdina verði áfram starfandi og haldi utan um verkið. Óháð því fyrirkomulagi munu allar ákvarðanir um framgang verksins ráðast af þeim fjárheimildum sem Alþingi samþykkir hverju sinni. Þær ákvarðanir erum við ekki að taka hér og nú.
Af sjónarhóli ríkissjóðs felur þessi tiltekna breyting ekki síst í sér að ekki er aðeins horft til þeirra útgjalda Landspítalans sem hefðu leitt af árlegum leigugreiðslum af nýju húsnæði heldur þarf að fjármagna framkvæmdina sjálfa. Nauðsynlegt er að leiðir til þess séu ræddar opinskátt enda öllum ljóst að Landspítalinn, okkar mikilvægasta heilbrigðisstofnun, getur ekki búið við óbreyttan húsakost.
Í umsögn fjárlagaskrifstofu fjármála- og efnahagsráðuneytisins er heildarumfang verkefnisins dregið upp mjög skýrum dráttum. Þetta er brúttómyndin sem er nauðsynlegur grundvöllur þeirrar vinnu að rúma framkvæmdina innan áætlunar um ríkisfjármál á næstu árum og ákveða fjárheimildir. Þegar út í þá vinnu er farið þurfum við að taka tillit til fjölmargra þátta sem ekki eru dregnir fram nú en ég vil leyfa mér að drepa á þá helstu til upplýsingar svo að þingheimur láti ekki hugfallast andspænis verkefninu.
Fyrst af öllu verðum við að hafa hugfast að óháð ákvörðun um byggingu nýs spítala blasir við að á næstu árum verður að leggja í verulegan kostnað vegna húsnæðismála Landspítalans. Hluti núverandi húsnæðis, eins og við höfum heyrt af í fréttum, uppfyllir ekki ýtrustu kröfur um öryggi og aðbúnað, hvort sem er sjúklinga eða starfsmanna, auk þess sem við blasir þörf fyrir fjölgun sjúkrarýma, meðal annars vegna öldrunar þjóðarinnar. Hvort tveggja þýðir að óhjákvæmilegt er að ráðast í umfangsmiklar endurbætur og viðbyggingar. Eldri sjúklingar, eftir því sem þjóðin eldist, eru þyngri og sýkingarhættan verður þar með meiri og sýkingarhætta á svona sjúkrahúsum er verulega kostnaðarsöm þannig að þetta snýst að miklu leyti til líka um öryggi. Undan þeim kostnaði verður ekki vikist og spurningin því fyrst og fremst um skynsamlegustu leiðina sem skilar hámarkshagræði og -gæðum til framtíðar litið. Í þessu sambandi er líka vert að nefna að þótt við tölum um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut væri ef til vill réttara að tala um stækkun Landspítalans við Hringbraut því að stór hluti af núverandi húsnæði spítalans verður áfram í notkun og tengdur nýjum byggingum til að tryggja sem mesta hagkvæmni framkvæmdarinnar.
Þá má líka nefna að tæki sem úreldast þarf að endurnýja og þó að gert sé ráð fyrir því að fara þurfi í milljarðatækjakaup í umsögninni, kostnaðarmatinu, þarf að endurnýja tæki sem úreldast og kröfur um bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu kalla á tækjabúnað, hvort sem honum yrði fyrirkomið í eldra húsnæði eða nýju. Við sjáum þetta meðal annars á þeirri staðreynd að á fjárlögum yfirstandandi árs var ákveðið að verja um 600 millj. kr. sérstaklega til tækjakaupa á Landspítalanum til viðbótar við það fé sem hafði verið lagt til í fjárlagafrumvarpinu. Þá hefur verið bent á vandann og kostnaðinn sem fylgir því að koma umfangsmesta tækjabúnaðinum fyrir í eldra húsnæði sem ekki er teiknað með hann í huga.
Loks má nefna það rekstrarhagræði sem hinir erlendu ráðgjafar verkefnisins hafa reiknað út af því að reka sjúkrahúsið á einum stað og að miklu leyti í nýju sérhönnuðu húsnæði.
Oft er bent á að sjúkrahús er svo miklu meira en steinsteypa og tækjabúnaður. Og það er rétt að starfsemi heilbrigðisstofnana snýst fyrst og fremst um fólk, hvort sem um er ræða allt það frábæra starfsfólk sem þar starfar eða sjúklingana. Þegar við tökum ákvörðun til framtíðar um að stækka og efla kjarnann í okkar heilbrigðiskerfi á einum stað erum við líka að hugsa um fólk, nánar tiltekið um þann aðbúnað og þá umgjörð sem allt þetta fólk á skilið til að geta sinnt starfi sínu eins vel og kostur er og fengið þá bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á. Það er auðvitað markmiðið.
Allt þetta þurfum við að gaumgæfa í framhaldinu þegar metið er í hvaða áföngum fjárveitingavaldið heimilar framkvæmdina. En verkefni okkar nú er að horfast í augu við þá staðreynd að taka þarf ákvörðun um að hverfa frá fyrirhugaðri leiguleið. Næsta skref er svo að samrýma brýnar úrbætur við metnaðarfull markmið okkar í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. fjárlaganefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari.