stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.
Virðulegi forseti. Fyrst út af því sem kemur fram í svari hæstv. ráðherra, um að heimilt sé að fara leiguleið, þá er það alveg skýrt, og hæstv. ráðherra veit það, að ekki má fara í samninga um það nema það verði formlega lagt fyrir Alþingi eins og málið var afgreitt af hv. fjárlaganefnd á sínum tíma.
Þá vil ég kannski fá að spyrja hæstv. ráðherra um væntingar hennar varðandi þessi þrjú atriði, bílastæðahús, skrifstofubyggingar eða sjúkrahótel, hvort það sé hugmynd hæstv. ráðherra og ríkisstjórnar að hefja þá vegferð á þessu ári. Ef ég skil þetta rétt telur hæstv. ráðherra að með samþykkt þessa frumvarps, með þeirri breytingu sem gerð er á 2. gr. frumvarpsins, sé það staðfest að hún hafi heimild til að leggja af stað í þessar þrjár minni byggingar, ef þannig mætti orða það, þ.e. ef frumvarpið verður samþykkt.