stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.
Frú forseti. Eftir því sem ég kynni mér þetta mál betur því dýpri verður sannfæring mín fyrir því að við þurfum að gera þetta. Ástæðan er sú að við erum að forgangsraða í þágu heilbrigðisþjónustunnar með þessu verkefni. Við erum einmitt að því. Eins og ég fór yfir í ræðu minni áðan þá snýst þetta um öryggi sjúklinga, þetta snýst um aðbúnað. Við horfum fram til þess að sjúklingar verði sífellt þyngri vegna þess að við erum að eldast, þjóðin er að eldast. (Gripið fram í.) — Hv. þingmaður fékk sína mínútu hér, ég hlýt að fá að nota mína.
Við verðum að horfa til þess að aðbúnaðurinn í núverandi byggingum dugar ekki til framtíðar. Hann dugar ekki. Það er einfaldlega rangt að með þessu séu menn að horfa til þess að kaupa sér einhvern lúxus, einhverjar byggingar í Reykjavík. Þetta snýst um heilbrigðisþjónustu fyrir landið allt, að vera með byggingar sem geta tekist á við framtíðina í heilbrigðisþjónustu, vera með byggingar sem geta haldið utan um þann tækjakost sem þarf að vera í nútímaheilbrigðisþjónustu. Um það snýst þetta mál. Það er síðan okkar verkefni að skapa þessa forgangsröðun þannig að þetta rúmist innan ríkisfjármálaáætlunar. Ég hef fulla trú á því að okkur takist það ef við vinnum skynsamlega og sameiginlega að þessu máli.