stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.
Virðulegi forseti. Það er öllum ljóst að það þarf að gera eitthvað. Húsnæðið hefur lengi verið mjög slæmt og ef við ætlum ekki að fara þessa leið þurfum við að fara einhverja allt aðra leið. Ástæðan fyrir því að menn voru að sameina spítalana, ástæðan fyrir því að menn voru að sameina deildir, var sú að ná rekstrarhagræði. Ég vil að það sé alveg kristaltært að það sem lagt var upp með — því að ég veit það, ég þekki það. Fyrrverandi forstjóri spítalans kom með þá hugmynd að við mundum skoða hvað yrði gert í Noregi vegna þess að menn voru að fara í sambærilega aðgerð þar. Þá var lagt upp með það að byggingarkostnaðurinn eða leigan fyrir þetta næðist fram með rekstrarhagræðingu. Síðan hafa menn verið að hræra í skipulaginu og er hætta á því að með breytingum á byggingunum náum við ekki sömu rekstrarhagræðingu og lagt var upp með.
Ég fer fram á að sú hv. nefnd sem fer með þetta mál fái það algjörlega á hreint að við séum ekki að hvika neitt frá því. Það er alveg ljóst að við þurfum að gera eitthvað en ástæðan fyrir því að menn eru að fara þessa leið er sú að spara og það á að nýta þann sparnað til að byggja þennan spítala.