stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.
Frú forseti. Miðað við síðustu orð hv. þingmanns ætti hann að fagna því að við séum að gera þessa formbreytingu. Það er þá engin 6. gr. heimild eins og verið hefur hingað til. (Gripið fram í.) Ef hv. þingmaður les frumvarpið, ef hann les greinargerðina með því, þá sést það alveg greinilega að menn munu þurfa að láta þetta passa inn í ríkisfjármálaáætlun, (Gripið fram í.) verkefnið er að koma þessu fyrir í fjárlögum. Við erum að gera formbreytingu, frú forseti. (REÁ: Af hverju svona seint?) Það er stóra verkefnið með þessu frumvarpi. Menn eru einmitt að hverfa frá 6. gr. heimildum og fara inn í gagnsætt ferli með þetta, í fjárlögum. Hv. þingmaður hlýtur að fagna því að við séum þá að gera þessa breytingu (Gripið fram í.) og við hljótum að geta sammælst um að gera hana.